Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Side 61

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Side 61
IÐUNN Brot úr ferðasögu. 283 lag eitt stórt nefnist The Pan-American Union. Er það samband allra ríkja Suður- og Mið-Ameríku ásamt Bandaríkjunum. Þetta félag á geysi-skrautlega höll með mörgum og stórum sölum. Eitt kvöld hafði það boð inni fyrir gestina. Þá höfðu sendiherrar allra ríkja boð fyrir fulltrúa sinnar þjóðar. Víð Islendingarnir nutum það kvöld gestrisni sendiherra Dana í Washington, ásamt dönsku fulltrúunum. Sendiherra Norðmanna bauð öllum Skandínövum heim. Mr. Herbert Hoover og frú hans, miðstöð Rauða krossins og ýmsir klúbbar — clubs — sem enski heimurinn er svo auðugur af — höfðu einnig boð fyrir okkur. Þá hafði eg talsvert gott tækifæri að heyra ame- ríska sönglist. En ekki get eg sagt að neitt af því tagi, er eg heyrði, hrifi mig. Það besta, sem eg heyrði af því tagi, var gamli Grieg, sem mjög er mikils metinn þar vestra. En eitt er aðdáunarvert þar og hygg eg að engin þjóð leiki eftir, hvernig Ameríkumenn búa út, það sem við köllum »skrautsýningar«. Afskaplega stórfeng- legur þegjandi leikur var sýndur. Efni hans var að sýna andstæður friðar ^g styrjaldar. Leiksviðið var stórt og þátttakendur geysimargir. En það áhrifamesta við sýn- inguna var, hvernig leikið var með ljós í öllum lituni og litbrigðum. Mig hafði skort ímyndunarafl til að hugsa mér það, og eg hefi engin orð til, er geti lýst því. Oft- ar en í þetta sinn höfðum við ástæðu til að dást að þessari sérstöku Amerísku list. Bandaríkin byggja, auk hvítra manna af öllum þjóð- flokkum, hinir fornu frumbyggjar landsins, Indíánar, er nú eru orðnir fáir og smáir, og einangraðir í svoköll- uðum »reserves«, og svertingjar, afkomendur þrælanna, er á þrælasölutímunum voru fluttir til landsins frá Af- ríku. Svertingjarnir eru fjölmennir orðnir, svo fjölmennir.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.