Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Side 65
IÐUNN
Brot úr feröasögu.
287
veita þó samband Norður- og Suðurríkjanna, og var
því vaxinn að koma fram ásetningi sínum.
Mount Vernon. Við siglum eftir ánni Patomac. Hinu
megin við hana gnæfa loftskeytastengurnar í Arlington
hátt í loft. Sterkasta loftskeytastöð heimsins. Er lengra
dregur verður landslagið smáhæðótt. Á einni hæðinni
blasir við lágt hvítt hús. Þangað er stefnt. Þetta er
Mounl Vernon, búgarður George Washingtons. Staður-
inn er þjóðareign, og hér stendur alt með ummerkjum.
Lágu, rúmgóðu stofurnar geyma húsgögnin hans, og
uppi á loftinu er herbergið sem hann dó í. Utanhúss-
byggingar standa allar með sama sniði og er hann bjó
hér, gamla uxakerran og þunglamalegi vefstólllnn eru
með kyrrum kjörum. Spölkorn frá húsinu er gröf Wash-
ingtons og konu hans. Niður að ánni teygja sig grænar
brekkur og í fjarska sést borgin. Hér er alt hreint og
óflekkað. Sá, sem hingað kemur, finnur, að andi göfugs
manns svífur hér yfir vötnunum.
Arlington. I Arlington er þjóðargrafreitur Dandaríkj-
anna. Undir mjúkri grasábreiðu hvíla þar í óendanlega
löngum röðum, hinir frægusfu synir þjóðarinnar er lífið
létu í styrjöldinni miklu. Litlar hvítar marmaratöflur eru
einu vegsumerkin. Þær eru margar — hryllilega margar.
Hér er gröf hins óþekta hermanns.
2. sunnudagur í maímánuði ár hvert er helgaður
stríðsmæðrunum — War-Mothers day. — Eru sérstakar
guðsþjónustur í öllum kirkjum, en aðal athöfnin fer fram
úti í Arlington. Sú athöfn er víst gerð til þess að vera
einskonar sárabætur fyrir sonalausu mæðurnar. En ham-
ingjan má vita hvort hún er ekki eitthvað annað. Hern-
aðarbragurinn var augljós. Það eru æðstu menn hers
og flota, er hér leggja mest til. Aðalræðumaðurinn víð-
frægði hetjudauðann á vígvellinum, og fórnfýsi mæðr-