Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Page 68

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Page 68
290 Einár Þorlrelsson: ÍÐUNN hæfileika Gríms, að menn skeyttu ,mera‘ framan við nafn hans, þegar hann var á vist með presti, og kölluðu hann Mera-Grím. Og þetta nafn varð honum svo fylg>' samt, að varla mátti ætla sér, að nefna hann öðru nafni í sveit hans, svo þegar yrði skilið við hvern átt væri. Það var og reynt, að menn áttuðu sig illa á því væri nefndur Grímur Hallsson. Og margreynt þótti það vera, að menn komu því með engu móti fyrir sig við hvern átt væri, ef nefndur var Arngrímur Hallsson. Mera-Grímur var maður vænn vexti, herðamikill, búk- þykkur og holdsæll. Hann var hærður manna best og var hárið rauðbleikt og mikið, og skeggið, sem var rót- vítt og tók í bringu, bar sama lit og þó mun dekkra. í andliti var hann vel á sig kominn. Ennið mikið og á hofmannavik, augun skær og föst, brúnirnar svipmiklar og nokkuð skúfhærðar, nefið allstórt, beint og fór vel. Andans atgervi hans var sú, að hann var maður greinagóður og minnugur. Kunni frá mörgu að segja og var sannorður og þó spaugyrtur. En aldrei gátu menn hlustað með jafn óskiftri athygli á hann sem þá, er hann sagði frá snilli góðhesta. Áhugann, orðhepnina og hóf í orðmergðinni virtist hann þá hafa svo á valdi sínu, að varla yrði framar á kosið. Það fór líka saman, að menn hlustuðu oft hugstola á þessar sögur hans og hitt, að þær lifðu á tungu manna. Mera-Grímur var greiðamaður og góðvildar og þess naut hann hjá sveitungum sínum, því fyrir gat komið, að hann þyrfti að fara með nokkur nauðleitarerindi til þeirra. Litli-Hnúkur hét ábýli hans. Það var slægnakot sæmi- legt, en lítið var um beitarsnöp þar á vetrum. Það kom sér ekki heldur illa. Grímur var því frábitinn, að nudda við að beita kindum að veturlagi. Hann vildi gefa öllu

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.