Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Blaðsíða 22
332
Skáldsögur og ástir.
iðunn
kvikmynd, hver söngur, þá er ástæ'öa til þess að opna
gluggana og hleypa inn nýju lo.fti. I sjálfu sér er ekkert
furöulegt, þótt þetta valdi háværri afneiíun á gildi
ástarinnar og mönnum sé boðað skírlífi sem fagnaðar-
erindi og spámannleg krafa (sbr. Steinn Elliði í „Vef-
aranum“). En slík móðursýki afturkastsins læknast.
Full ástæða er til þess að ætla, að vér séum að færast
inn í tímabil, þar sem riki hreinna loft, dýpri skiln-
ingur og sannari á þessari veglegu og samsettu ástriðu
mannverunnar.
Árborg, Man., 11. sept. 1931.
Ragnar E. Kvaran.
1 grein Ragnars E. Kvaran, „Slitur um isl. höf.“ í 2. h.
þ. á. eru þessar prentvillur: Á bls. 119, efstu línu, stendur
fánýtum dygdum — á að vera fánýtum dádum. Á bls. 120,
14. 1. að ofan, stendur ekki ósjaldan — á að vera ósjaldan.
Á yztu nesjum.
Ég geng einn urn gömlu nesin,
golan blæs mér í fangið.
Eggjandi vorsins öldur
iða við bleika þangið.
í»ú seiddir mig ungan, drynjandi djúp,
<mitt draunrlíf er af þér skorið.