Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Blaðsíða 35
IÐUNN
Örfá orð til andsvara.
345
mál að sinni. Hins vegar liggur mér á hjarta að rita
nokkur orð í tilefrn af dómi hans um „Æfisögu Jesú
frá Nazaret".
I.
R. Kv. segir, að ég eigi þakkir skilið fyrir að liafa
gefið hókina út. Ég er algerlega sammála. Hann segir,
að með ])ví gefist peim, er annan veg líta á málið, sér-
stakt tækifæri til að rökstyöja sitt viðhorf. Á jrennan
hátt hugsaði ég líka, þegar ég var að rita bókina. Mér
hafði aldrei í hug komið að halda því fram, að mín,
skoðun væri hin eina sanna í málinu, en hitt var mér
Ijóst, að þetta var í fyrsta skifti, sem sett var fram rök-
studd skoðun á lífi og starfi Jesú á grundveili vís-
indalegra biblíuskýringa. Frá minu sjónarmiði gat eng-
in önnur skýring átt við. En ég taldi sjálfsagt, að af
öllum þeim sæg biblíufróðra manna, sem myndu vera
ákveðnir móti skýringum mínum, myndi einhver koana
með rö-kstudda skoðun, sem gengi i aðra átt, en ætti
það sameiginlegt, að Leitað væri vandlega raka og
samhengis milli orða hans, athafna og örlaga. Ég leit
svo á, að þessi persóna þætti svo merkileg, að vert
þætti að gera sér hennar sem rækilegasta grein, og
hvað og hvernig um hana hefði verið ofið af trúar-
blindni tilbeiðenda.
En það hefir farið nrjög á annan veg. Um flesta þá,
er ritaö hafa um málið, hefir það verið vitað fyrirfram,
að þeir höfðu ekki hið allra minsta fram að færa af
því, sem kalla mætti vit eða þekkingu til að dæma um
þessa hluti. Frá því hafa verið að eins tvær undan-
tekningar: prófessor Sigurður Sívertsen, sem ritaði í
Prestafélagsritið, og Ragnar Kvaran með áðurnefndri
grein.
Iöunn XV.
22