Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 71

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 71
IÐUNN Trúarbrögð og kristindómur. 38Í færi. Væri nú nokkuð vit í pví að kaila petta ömurlegS fyrirbrigði ástalífsins þá einu sönnu ást nrilli karls og konu? Og er þá ekki jafn-fjarri sanni að 'nefna vald- boðið kaldabras kennisetninganna trúarbrögð, án tillits til allra annara mynda, sem neligion mannanna birtist í? Þessu svara ég hikiaust neitandii, og af þeim sökum standa sumar fullyrðingar vinar míns, síra G. B., þversum í höfðinu á mér. II. Fyrst framan af hélt ég, að hugmyndabrengf sira Gunnars næðu ekki lengra en þetta, sem ég nú hefi lýst. En á grein hanisi í „Iðúnni" (1. hefti þ. á.) sé ég, að þegar hann falar um „kristindóm", eiga orð hans við annað en það, sem kallað hefir verið kristindómur, og af því sprettur margskonar misskilningur. Hann á þar eingöngu við nokkur gönrul kenningaratriði, sem þróast hafa innan kristninnar, svo sem friðþægingar- kenningu, þrenningarlærdóm o. fl. Ég veit ekki betur en að flestar þessar kenningar, sem síra G. B. segir, að hafi „drottnað yfir miklum lrluta, niannkynsins hátt á annað þúsund ár“, hafi engan veg- inn verið þær sömu allan þann tíma, og því síður hefib öll sú heild, sem hingað til nefnist kristni, verið um þau óskift og sammála. Trúfræðingar geta þrætt stig af stigi, hvernig t. d. þrenningarlærdómurinn verður til og birtist í ýmsum myndum. Sjálf friðþægingarkenn- ingin hefir engan veginn verið sú sama um allar aldir, þ. e. að Kristur hafi dáið til að „fullnægja hegningará- kvæði hins eilífa rétt.lætis“, eins og síra G, B. orðar það. Að minsta kosti er það ekki ávalt áberandi þáttuí i kenningunni. Páil postuli leggur t. d. áherzluna á, að dauði Krists sé dauði sjálfs „holdsins", sem þangah

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.