Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Side 69

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Side 69
IÐUNN Trúarbrögð og kristindómur. 379 hyggju. Efnishyggjumenn geta nú að eins verið peir, sem lepja upp molana frá borðum liðna tímans og kyngja peim ótugðum. Svo hrottalega hefir bæði eðlis- fræði, efnafræði og stjörnufræði nútimans gefið efnis- hyggjunni utan undir. Þaö er sanni næst, að kröftug- ustu prédikanirnar um tilveru guðs og andlegra heimai sé að sækja í rit peirra, sem pessi fræði stunda.*) Efn- ishyggjan er pví orðin eftirlegukind í visindaheiminum. Á henni byggir enginn maður kastala framtíöarinnar, og sízt er hún til nokkurs nýt fyrir trúarbragðafélagsskap, sem starlar í samræmi við nútímavisindin, eins og is- lenzka kirkjan gerir. En hvað eru pá trúarbrögd, úr pví að pau eru ekki sama sem valdboðin kreddutrú? Ég legg sama skilning í íslenzka orðið trúarbrögð og útlenda orðið „religion". En religion hefi ég skilið pannig, að pað væri sú grein, sem maðurinn gerir sér fyrir afstöðu sinni og sambandi við æðsta vald tilveru sinnar, eins og hann verður pess' var í deglegri lífsreynslu og einstökum athöfnum og atvikum. Getur petta vitanlega orðið á marga vegu, eftir skaplyndi og gáfnafari eða margbreytni iífsreynsl- unnar. Religion villimannsins hiýtur pví að fá annað’ snið en hins siðmentaða manns, borgarbúans annað en dalbúans, lærða mannsins annað en hins fáfróða. Mis- jöfn lífskjör og jafnvel efnahagur á sinn pátt í að rnóta religion manna, eins og annað, sem hugarfaif jieirra snertir. En hrifni, tilbeiðsluprá, lotning og fögn- uður geta eigi að síður búið undir niðri hjá peim öll- um. Samt má ekki, af ýmsum ástæðum, gera of mikið úr mismuninum á trúarbrögðum manna. 1 fyrsta Lagi eru *) Sjá Ág. H. Bjarnason: „Hcimsmynd vítindanna“; Störmer: ,,Fra Verdensrummets Dybder til Atomcrnes Indre“, og hina ágætu grein Ás- geirs Magnússonar: ,, Aldahvörf“ í lðunni I. h. 1931.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.