Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 62
372
Höfundur Robinsons Crusoes.
iðunn
virkileikans. Er hér J)ví um sjálfstætt skáldverk a5
ræða og næsta einstætt í bókmentasögunni.
Robinson Crusoe kom fyrst út árið 1719. Má [)að ótrú-
legt virðast, að Defoe gekk mjög illa að fá útgefanda
að merkisbók Jressari. En ekki voru lesendur lengi að
átta sig á ])ví, að hér var óvenjulegt rit á ferðum. Bókini
var prentuð í apríl, en í ágústmánuði Jrá um sumarið
voru komnar á prent fjórar útgáfur hennar. Robinson
Crusoe var J)ví í byrjun stórsölurit (,,best-seller“), eins
og Jrað myndi orðað á auglýsingamáli nútímans. Brátt
sást einnig, að bókin átti erindi til allra Jrjóða. Árið
eftir að hún var fyrst pnentuð, var hún þýdd á Jrýzku
og frönsku, og síðan hefir henni verið snúið á mesta
sæg tungumála. Arabar lesa hana meira að segja á.
tungu sinni í tjöldum sinum. Samdar hafa verið fjölda
margar sögur í likingu við hana, og listamenn og bóka-
útgefendur hafa keppst um að gera sem skrautlegastar
útgáfur af henni. 1 einu orði sagt, mjög fá, ef nokkurt,
rita síðari alda hafa orðið jafn-víðfleyg og Robinson
Cnusoe.
Hreinasti ójrarfi er að rekja hér æfintýri Robinsons:
Jmu eru flestum í fersku minni. En hitt er ekki ófró'ð-
legt, að reyna að gera sér giein fyrir því, hvernig
stendur á þeirri sjaldgæfu lýðhylli, sem saga hans hefir
hlotið í hinum fjarlægustu löndum og hjá hinum fjar"
skyldustu Jijóðum.
Blær raunveruleikans, sem hvílir yfir sögunni fra
byrjun til enda, er eflaust eitt af því, sem aflað hefii'
Robinson Crusoe vinsælda. Að því hafa einnig stuðlað
leikni Defoes í frásögn og hinn látlausi en iípri stíll
hans. En það, sem öðru fremur veldur því, að Robin-
son Crusoe hefir náð svo föstum tökum á lesendum
hvarvetna, er aðalefni fyrsta kafla ritsins, frásögnim