Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Blaðsíða 90
400
Bækur.
ÍÐUNP®
ir nú gefið út í þýðingu Ragnars E. Kvarans, er ein af síð-
ari bókum Sinclairs, þótt skrifuð sé hún fyrir nokkrum
árum. Pað er bók höf. um heimsstyrjöldina. Að söguhetju
hefir hann valið einfaldan og óbrotinn alþýðumann, eins og
hann gerist og gengur, einn úr fjöldanum. Það er ekkert
glæsilegt við Jimmie Higgins; hann er fátækur vélamaður,
sem á konu og börn, vinnur fyrir brauði sínu og sinna,
þegar einhver viii kaupa vinnu hans, og sveltur, þegar eng-
inn þarf á honum að halda. Hann er vanur að hlýða fyrir-
skipunum og ávalt boðinn og búinn til að taka á sig ómök,
ef félagar hans kveðja hann til. Víðlesinn er hann ekki né
margfróður, en þó hefir honum opnast sýn inn í fyrirheitna
landið; hugsjónin um jafnrétti og bræðralag hefir snortið
hans einföldu sál, og hann er dyggur liðsmaður í samtökum
stéttarbræðra sinna, fús að vinna hvert það starf, sem
honum er trúað fyrir.
Verkefni höf. er nú að sýna oss, hver áhrif styrjöldin
hefir á hugsunarhátt og örlög þessa manns. Það byrjar
með alls konar stappi og stímabraki heima í Leesville, dval-
arborg Jimmies. Heimurinn er alt í einu orðinn brjálaður,
en fyrst um sinn hefir vitfirringin í för með sér aukna at-
vinnu og velmegun. Jimmie auðgast að lífsreynslu — t. d.
þeirri spánnýju reynslu, að hægt er að afla peninga með
öðru móti en að strita fyrir þeim. En áður en varir er
hann kominn á svarta listann, sviftur atvinnunni og verður
að hrekjast á brott. Konu sína og börn missir hann af
völdum ógurlegrar sprengingar, því að nú er fósturland
hans löngu orðið ein allsherjar smiðja morðtækja og vítis-
véla. Upp úr þessu kemst Jimmie á flæking, og drífur nú
margt á daga hans. En þar kemur, að hann lætur berast
með straumnum óstöðvandi: hann gengur í herinn. Ekki
til þess að berjast og drepa, því alt eðli hans rís öndvert
við slíkum verknaði. En honum hefir verið sagt, að við
herstöðvarnar sé mikil þörf verkainanna. Hann innritast í
herinn til þess að fá atvinnu. Eigi að síður lendir hann í
eldlínunni jafn-skjótt og til vígstöðvanna er komið. Hann
kemur á úrslitastundu, þegar vopnalukkan er að snúast
Bandamönnum í vil. Af tilviljun tekur hann þátt í viður-
eign, sem hverfir stríðshjólinu. Það er Jimmie Higgins, sem
vinnur stríðið; að minsta kosti heldur hann það sjálfur.