Kirkjuritið - 01.10.1938, Síða 25

Kirkjuritið - 01.10.1938, Síða 25
KirkjuritiS. Kirkjan og dósentsmálið. 355 ræðis. Konungur og ríkisstjórn hlýtur því aðeins að skoðast að hafa haft umboð þessara eigna, en ekki eign- arliald á þeim. Og með þessum skilningi og með tilliti til þess, sem landsmenn greiða árlega í afgjöld kirkju- eigna og' prestsgjöld, mun vafamál, livort íslenzka þjóð- kirkjan er ekki ölln heldur gróðafyrirtæki ríkissjóðs fremur en fjárhagslegur haggi. En út í þetta skal ekki frekar farið hér. Ég vildi aðeins sýna fram á, að eins og nú horfir við, er kirkjan alveg eins fjárhagslega ósjálfstæð gagnvart ríkinu, og verður undir þess náð að sækja hvern eyri sér til framfærsln, eins og hún er undirgefin ríkisvaldinu hvað embættis- veitingar snertir. Því til ern þeir lögfræðingar, sem jafn- vel ganga svo langt, að þeir skoða prestskosningalögin ekki fnllan rétt til handa söfnuðnnum, heldur aðeins ráðgefandi rétt, sem ráðlierra sé ekki skilyrðislaust hundinn við að fara eftir, enda þótt kosning sé lögleg, sem kallað er. Þessar hugleiðingar finst mönnnm nú ef til vill að lítið komi því máli við, sem hér liggur fvrir að ræða. En ég skoða nú einmitt hættuna, sem af dócentsmálinu stafar, liggja þarna. í þessu máli er ekki, frá mínu sjónarmiði, mest um það vert, hvort Sigurður Einarsson eða Björn Magnússon eru dócentar við guðfræðideild Háskólans. Um það eru vitanlega skiftar skoðanir. Það eru lil þeir menn, sem álíta kristnilíf þjóðarinnar fult eins vel borg- ið með S. E. sem kennara preslaefna, eins og B. M. Það yrði sjálfsagt vandfundinn sá maður, sem allir sættu sig við, og ekki þætti annaðhvort of íhaldssamur eða of frjálslyndur. Hættan, sem af þessu máli stafar, er það, hve óræk sönnun það er fyrir því, hvað íslenska þjóð- kirkjan er í raun og' veru gersamlega máttvana í liönd- um ríkisvaldsins, þar sem bæði veitingarvald embætt- anna og yfirstjórn fjármálanna er með lögum falin þeim mönnum, sem ekki er minsta trygging fyrir að hafi einu sinni samúð með kirkjunni eða vilji hennar hag

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.