Kirkjuritið - 01.10.1938, Page 32

Kirkjuritið - 01.10.1938, Page 32
362 Aðalfundur Prestafélags íslands. Október. þarf hún að verka á það, gera þjóðfélagið kristið, og þar með full- trúasamkomuna og stjórnina. En takist henni það ekki, þá er henni lika betra að athuga tilverurétt sinn í slíku þjóðfélagi. Ég vil setja fram nokkur atriði til þess að ræða: 1. Kirkjan á að hafa fullkominn tillögurétt um öll sín mál, full- komið málfrelsi, aðgang að öllum stjórnarvöldum og tæki til þess að tala sínu máli hvar sem er. 2. Hún á að ráða ákveðnum málum alveg, t. d. um guðsþjónustur og starfið sjálft, enda hefir hún fengið það að nokkuru. 3. Hún á að hafa nokkura fjárliæð til eigin ráðstöfunar. 4. Hún á að fá kirkjuþing, kosna fultrúasamkomu, presta og' leikmanna, er hafi sumpart löggefandi vald og sumpart ráð- gefandi og ráðstafi fé kirkjunnar. í sambandi við synódus á kirkjuþingið að geta löggefið um ýmis atriði. Kirkjuþing á að búa frumvörp öll um kirkjuleg málefni undir Alþing. 5. Gera þarf tillögur um fyrirkomulag kirkjuþings, og ætti nefnd að athuga það. Ég álít, að litið þýði að vera með fjarlægar hugmyndir um sjálfstæði kirkjunnar, heldur eigi að líta sér nær og athuga, hvaða skref á fyrst að stíga. Ég er ekki i vafa um það: Það er krafan um kirkjuþing. Ég vil nefna sem dæmi ráðgefandi þingið frá 1845. Það var ómetanlegt spor. Því að bæði undirbjó það og kom í gegn fjölda ágætra laga. Og það var spor í áttina til fullkomins lög- gjafarþings. Vel skipað kirkjuþing, sem gerði viturlegar tillögur, myndi flestu koma fram með þolinmæði og festu.“ Að erindinu loknu urðu allmiklar umræður um málið, m. a. skýrði séra Þorsteinn Briem prófastur frá niðurstöðum, er þeir höfðu komist að Hallgrímsdeildarmenn, með heiðursfélaga sinn dr. Árna Árnason í fararbroddi. Þá var samþykt með öllum greiddum atkvæðum þessi tillaga: „Fundurinn samþykkir að kjósa 5 manna nefnd til þess að taka sjálfstæði kirkjunnar til gagngerðrar meðferðar og undir- búa tillögur um jjað efni í samráði við kirkjuráð og Prestafé- lagsstjórn“. Þessir menn voru kosnir í nefndina: Ásmundur Guðmundsson, séra Guðmundur Einarsson, Magnús Jónsson, séra Sveinbjörn Högnason og séra þorsteinn Briem. ^ Séra Gísli Skúlason hafði framsögu um codex ethicus presta, og tóku síðan margir til máls. et icus pres a yoru ag lokum kosnir þrír menn til þess að endurskoða codex ethicus presta og leggja tillögur sínar fyrir

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.