Kirkjuritið - 01.02.1940, Síða 23

Kirkjuritið - 01.02.1940, Síða 23
Kirkjuritið. Vigða laugin. 61 Saga þessarar laugar keinur tvisvar við merk- ustu atburði íslenzkrar sögu, og er hún því ein af hinum allra dýrmæt- ustu þjóðminjum okkar. Þegar ég kom að Laugarvatni 1932, þá var ekki annað sjáan- legt af lauginni en barmarnir, og þá var áún full af sandi og leðju og hafði vafalaust ekki verið lireinsuð upp í niarga áratugi. Vatn niilli 50—60 stiga heitt rann þar um. Um sumarið gróf ég hana upp og kom þá í ljós hleðslan alt i kring °g að hún er einnig steinlögð í botni, 70—80 cm. djúp, eu. 90 cm. að þvermáli og kringlótt í lögun. Heita læknum veitti ég frá og safnaðist þá vatn i laugina, milli 35—40 stiga heitt, sem svo má bita eftir vild nieð því að renna heitu vatni í eftir þörfum. Er þar svo gott bað, að betra getur varla hugsast. í henni geta setið 4—6 í einu. Þennan merka stað þarf að friða, Vígðu laugina og Líka- steinana, ásamt umhverfinu, svo að ekki verði þeim spilt, b d. með fyrirferðarmiklum og háreistum mannvirkjum, eins og Snorralaug í Reykholti. Og prestastétt landsins ætli öðrum fremur að vera ant um þessar minningar. Og víst mun Vígða laugin þvkja merkileg, ef haldið verður UPP á þúsund ára afmæli kristins dóms í landinu árið 2000; — að hafa þá enn skírnarfontinn þar, sem heiðing- inn varð „að geifla á saltinu“. Engum mun í hug koma að bvggja vfir laugina eða í nánd við hana, þvi að hún á að liggja opin við sól, eins og lhm liefir gert i þúsund ár; en vel mætti það við eiga að reisa þar krossmark eða Líkasteinar

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.