Kirkjuritið - 01.12.1944, Page 41
KirkjuritiÖ. Méssugjörð fyrir 70 árum.
279
og þá einkum í sætum þeim, sem hefðarkonur skipuðu
ásamt dætrum sínum og venzlakonum. Norðanmegin
í innsta sæti var öldruð kona, fríð sýnum, grannvaxin
og ekki fyrirferðarmikil. Það var Ragnheiður Vigfús-
dóttir, prests að Reynivöllum, Eyjólfssonar. Ragnheiður
var ekkja eflir Kolbein hreppstjóra á Hofsstöðum, Árna-
sonar i Ivalmanstungu, Þorleifssonar. En kona Árna og
móðir Kolbeins var Halldóra Kolbeinsdóftir, prests i
Miðdal, Þorsteinssonar. — Þá er miðaldra kona, dökk
yfirlitum, svört á hár og' köld á svip. Það er Halldóra,
dóttir þeirra lijóna, Rágnheiðar og Kolbeins. Var hún
þá með síðari manni sínum, Sigurði Þorsteinssyni, í tvi-
býli við móður sina á Hofsstöðum. Fýrri maður hennar
var Sigurður Jónasson, Iiins gamla, prests í Reykholti. Þá
er ung stúlka, hávaxin og gervileg, langleit, hereyg og
ekki fríð sýnum, með svail iiár mikið, greindarleg og
svipmikil. Var það Ragnheiður, dóttir Halldóru Kol-
beinsdóttur og' Sigurðar Jónassonar. Voru þau bræðra-
börn, hún og séra Þórður, þáverandi sóknarprestur.
Ragnheiður varð kona Magnúsar Blöndals frá Hvammi
í Vatnsdal. Þeirra son var Benedíkt Blöndal kennari á
Hallormsstað, sá er úti varð fyrir fáum árum.
Sunnanmegin sat öldruð kona, stórvaxin, frið sýnum
og að öllu hæði gervileg og glæsileg. Þelta var Kristín,
kona Jón Þorleifssonar á Kjalvararstöðum. Kristín var
dóttir Einars Þórólfssonar í Kalmanstungu og siðari
konu lians, Helgu Snæbjarnardóttur, prests i Grims-
tungu, Halldórssonar Hólahiskups, Brynjólfssonar. En
kona séra Snæbjarnar og móðir Helgu var Sigríður Sig-
valdadóttir, prests á Húsafelli, Ilalldórssonar. Kristín
var áður gift Jóni hreppstjóra Kristjánssyni. Þau áttu
fjölda barna. Hjá lienni sátu nú dætur hennar þrjár:
Guðrún, Sigríður og Steinunn, allar gervilegar. Guðrún
var kona Steingríms á Kópareykjum og móðir margra
mannvænlegra barna. Meðal þeirra voru þeir séra Jón í
Gaulverjabæ 'og Guðmundur S. Grímsson, dómari i