Kirkjuritið - 01.01.1946, Blaðsíða 14
8
Ásmundur Guðmundsson:
Jan.-Febr.
En hvað er það að vera vottur Ivrists?
Ýmsir ætla, að það sé að „vitna“, sem svo er kallað,
tala um „frelsun sína í Ivristi“. Stundum eru þeir, sem
])að gjöra, sannir vottar Krists. En stundum hrópa þeir
aðeins: Herra, lierra. Gríska orðið vfir vottur er mar-
tyros, og átti frumkristnin með því sérstaldega við þá
menn, sem lögðu líf sitl í sölurnar fyrir Ivrist. Þetta
bendir í rétta átt. Vottur Krists er sá, sem hefir orðið
snortinn djúpt af anda hans og' lætur áhrifin koma fram
í lífi sínu og starfi. Dauðinn er aðeins hámark þeirrar
kærleiksþjónustu.
Að þekkja Ivrist er að þekkja velgjörðir lians. Þú
veitzt, livað liann hefir fyrir þig gjört. Þegar andi hans
hefir snortið þig — heilagur andi komið vfir þig, þá
láttu það ummynda líf þitt, svo að það boði hann. Þá
stefnir það á æðri leiðir og birtir i verkahring þínum
ofurlítinn hluta af Guðs ríki. í guðspjöllunum er átak-
anleg saga um geðbilaðan mann. Öll tilveran var ein-
livern veginn gengin úr skorðum fyrir honum, og' hann
æpti og harði sjálfan sig grjóti. Þá sá hann Jesú og
varð albata. Sólin skein lionum björt og glöð, og hér-
aðið blasti við fullt af yndi. Hann vildi fara i trúhoðs-
för með Jesú. En Jesús sagði: „Far þú heim til þin og
þinna og seg þeim, hve mikla hluti Drottinn hefir fyr-
ir þig g'jört“. Og líf og starf þessa manns greiddi síðar
hoðskap Jesú veg til hjartna fólksins i því hyggðarlagi.
Svo skyldi einnig þér fara heima í verkahring þínum.
Láttu sem þú sjáir ganga sjálfan Jesú undan þér og'
rís upp til fylgdar við hanp í hugsunum, orðum og
verkum. Þetta er öllum unnt í krafti lians, er þeir vilja
einlæglega. Líttu t. d. á mæðurnar, sem oft eru fremst-
ar i þessum flokki, hvernig þær fórna sér fyrir heimili
sín og sýna þannig lögmál Ivrists og ríkis hans. Þar sér
þú tæran, heilagan loga stíga upp frá arni heimilanna.
Vinn starf þitt i anda Krists. Það gildir einu, hvert það
er, svo framarlega sem það er heiðvirt starf. Minnstu