Kirkjuritið - 01.01.1946, Blaðsíða 17
Kirkjuritið.
Uppstigning.
11
fram sinn skerf til þess eftir megni og ekki hika við
að færa stórar fórnir. í heiðingjalöndunum bjóðast nú
einnig einstæð tækifæri, sem verður að sinna. Þannig
er t. d. í Kína annarhver leiðtogi þjóðarinnar kristinn,
en aðeins einn af 100 hinna. Þaðan berst beiðnin vest-
ur: Sendið okkur 100000 kristniboða. Svipuð er þörfin
víðar. Og þótt erfiðlega liafi gengið fyrir vestrænar
þjóðir að boða krsitni á stríðsárunum, sem ekki er að
undra, þá má engin kristin þjóð daufheyrast við þessu
kalli, svo að upp af mustarðskorninu litla vaxi meið-
Urinn mikli, sem mun breiða um gjörvallan heim sín
laufskálatjöld.
IX.
Barnaskapur, draumórar, munu margir segja. Hvern-
ig ættu þessir fáu vottar Krists á dreif um jörðina að
geta valdið því, að allt mannkvnið taki nýja og hetri
s.tefnu, frá dauða til lífs?
En bæði orð Jesú Krists og reynzla kynslóðanna sýna
°g sanna, hvilíkur undramáttur er stundum fáum gef-
inn. Það eru aðeins fáir alþýðumenn, sem Jesús gel'ur
það fyrirheit, að þeir muni verða vottar sínir til yztu
endimarka jarðarinnar. Hann nefnir þá salt jarðarinn-
ar og segir þeim dæmisögu um agnarsmátt súrdeig, sem
sem sýrir stóra mæla mjöls. Máttur hans fullkomnast
i veikleika þeirra, svo að blessunina leggtir yfir lif
fjöldans. Tignarveldi Rómaborgar bar liátt, er Páll
])ostuli var hlekkjaður þar í þröngum og dimnnun
fangaklefa. Hvað var hann smávaxni maðurinn lijá
því öllu? Og þó urðu bréfin hans stuttu, sem hann reit
þar, miklu máttugri en allt Rómaveldi og reistu nýtt
nki á rústum þess. Söfnuðirnir dreifðu voru eins og
úropar i þjóðahafinu. En hvílíku'r kraftur fylgdi til
ummyndunar á lífi mannkynsins: Útburður barna hætl-
lr, skylmingarnar blóðugu leggjast niður, og smámsam-
an verður fjölgyðistrúin, dáða í listum og ljóði, að þoka