Kirkjuritið - 01.01.1946, Blaðsíða 38
Jan.-Febr.
Frú Anna Grímsdóttir Kvaran.
F. 6. sept. 1890. D. 7. nóv. 1944.
Frá fyrstu kynnum
mínum við séra
Trýggva H. Kvaran á
Mælifelli eru mér enn
minnisstæð orð, er
hann lét falla í samtali
okkar á milli, og man
ég nú ekki lengur til-
drög þeirra. „Ég vildi
aðeins óska þér þess“,
sagði hann, „að þegar
þú giftir þig, þá eign-
ist þú eins góða konu
og ég á“.
Þessi orð urðu mér
mjög hugstæð, þegar
ég kynntist konu lians nokkrum árum síðar. Frú Anna
á Mælifelli var góð kona og svo vinsæl, að með afbrigð-
um má telja. Fæstir munu þó hafa komizt að raun um
mannkosti hennar við fyrstu kynni. Hún var þá venju-
lega þurr á manninn og fáskiptin og óþægilega hrein-
skilin stundum. Minnist ég þess, að ég heyrði eitt sinn
tvær ungar stúlkur úr Reykjavík segja frá komu sinni
að Mælifelli. Presturinn var ekki heima, svo að þær
báru upp erindi sin fyrir húsfreyju. Þær þurftu að fá
lánaða liesla. Fannst þeim mjög dauft í það tekið og
fóru að tala um það sín á milli inni í stofu, að þeim lit-
ist frúin ekki líkleg' til greiðasemi. Urðu þær því ekki
lítið hissa, er þær heyrðu á tal hennar í næsta herbergi,