Kirkjuritið - 01.01.1946, Blaðsíða 70
64
Deildarfundir Prestafélagsins.
Jan.-Febr.
tlósentsembætti það við guðfræðideild Háskóla íslands, er stofn-
að var með lögum á síðasta Alþingi“.
Þá flutti séra Jósef Jónsson bsen, en sunginn var sálmurinn:
„Yist ertu, Jesú, kóngur klár.“
Aðalfundur Prestafélags Austurlands.
Aðalfundur Prestafélags Austurlands var haldinn á Seyðis-
firði dagana 14.—16. september. 9 starfandi prestar sóttu fund-
inn. Auk þess voru 3 safnaðarfulltrúar gestir á fundinum.
Fundurinn hófst með því að formaður, séra Marínó Kristins-
son, ias upp Efes. 6, 10.—17. og bað bænar á eftir. Sungnir voru
sálmar fyrir og eftir.
Þrjú erindi voru flutt á fundinum, þessi:
Samband trúar, siðgæðis og listar. Flm. séra Pétur Magnússon.
Kirkjusöngur. Fliu. séra Marínó Kristinsson.
Prestssetrin. Flm. séra Jakob Einarsson, próf.
Talsverðar umræður spunnust út af erindunum, einkum
tveimur hinum síðartöldu, og samþykkti fundurinn í sambandi
við þær eftirfarandi tillögur:
1. „Þar sem möguleikar eru taldir á því, að kennsla i harm-
óníumleik geti fengizt á Eiðum fyrir organista kirkna á Aust-
urlandi — en þörfin fyrir slika kennslu sumstaðar mjög að-
kallandi — felur fundurinn stjórn Prestafélagsins að kynna sér
áðurnefnda möguleika nánar, og vinna að þvi, að slík kennsla
íáist árlega.“
2. „Fundurinn lítur svo á, að prestssetursjarðirnar eigi hér
eftir, sem hingað til, að vera miðstöðvar kirkjulegs starfs í
héruðunum og prestarnir að liafa umráðarétt yfir þeim. Þar af
leiðandi verði að fara mjög varlega í það að skerða jarðirnar.
Þó megi teljast æskilegt, er lieimavistarskólar eru reistir í sveit-
um, að litið sé til þeirra öðrum jörðum fremur og unnið að því
að skólarnir standi þar.
Ennfremúr lítur fundurinn svo á, að æskilegt sé að friðuð
verði landspilda á hverri prestssetursjörð, allt að 1 fer. km., til
gróðursetningar skógarplantna eða björgunar skógarlelfa, ef til
eru. — Teigar þessir séu þó áfram í eign prestssetranna og
prestar — eða ábúendur prestssetranna — skyldir til að ann-
ast viðhald girðinganna og eftirlit með græðslu, undir umsjón
skógræktar ríkisins.“
Þessu næst voru félagsmál rædd og stjórn kosin, og skipa
bana: Séra Pétur Magnússon, formaður, séra Marínó Kristins-
son, ritari, og séra Erlendur Sigmundsson, féliirðir.
Laugardagseftirmiðdag sátu fundarmenn í boði sóknarnefnd-