Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1946, Page 24

Kirkjuritið - 01.01.1946, Page 24
18 Benjamín Kristjánsson: Jan.-Febr. en sálmaskáldið séra Matthías. Og kemur mér þá einn- ig í hug Jón hiskup Arason, þegar liann var „dæmdur af danskri slekt“ og horfði fram á hrun allra sinna vona, er hann stóð við vinduásinn í Skálholti, þar sem hann átli að láta líf sitt. Trú lians liafði einnig verið sterk og innileg, eins og sjá má af kvæði lians í Davíðs- dikti: „Breiði út mínar bænir með betran góðra verka og hreina hugarins lund. Veit mér vizkur vænar að vernda trúna sterka stöðuga hverja stund. Þungar syndir mér í móti standa, því er ég jafnan staddur í stórum vanda, hiðr eg herrann liimins og allra landa að hörmung þessi megi ei sálu granda. Þannig hafði hann ort í upphafi hiskupsdóms síns, þegar hann, með sinni djörfu og glöðu og álcöfu lund, tókst biskupsemhættið á herðar í blóma aldurs síns. Bjartsýnn liafði hann löngum verið, þó að oft væri við þungan andróður að etja. Hugrekki lians óx við hverja raun, margt snerist lionum til hamingju. En á þessum hinnzta áfangastað jarðlífsins, þar sem hann stóð með sonum sínum tveimur, andspænis dauð- anum, liver mundi þá hafa verið megin áhyggja lians önnur en kirkjan hans, sem liann óttaðist, að þaðan í frá mundi verða þerna konungsvaldsins, svipt auði og áhrifum, rúin fegurð og tign og ennþá minna metin en áður, þegar ótýndir þjónar kúgunarvaldsins stóðu yfir höfuðsvörðum hennar. II. Þannig hefir þetta hróp: „Kirkjan mín, Drottinn minn!“ bergmálað í hugum margra þeirra, sem varð-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.