Kirkjuritið - 01.12.1946, Síða 13
Kirkjuritið.
Guðsríki á jörðu.
307
einnig að það væri þegar koniið liingað á jörð, og að
allt líf lians og starf í orði og verki miðaði að því að
útbreiða það, og svo lærisveina lians, eftir þvi sem þeir
máttu. Kirkjan hefir starað þannig til liimins, að liún
hefir ekki séð skyldu sína að leitast við að tæma það
helvíti, er ginið hefir framundan henni á jörðu. Henni
hefir mistekizt um of
háfleyga hugsjón að tengja
við hitt, er nærri lá.
Þessvegna verpur enn vígroða um alla jörð, og marg-
ir óttast tortímingu mannkvnsins fyrir kyngikraft kjarn-
orkusprengjunnar.
III.
Kirkjan verður að hverfa aftur að stefnu Ivrists og
postula Iians. Hún verður að beita allri prédikun sinni
og öllu starfi að því, að guðsríkið birtist þegar í mann-
lífinu, verði að veruleika hér á jörðu. Hún verður að
berjast fyrir réttlæti í félagsmálum ogsporna af alefli gegn
eiginhagsmunastefnunni, sem traðkar undir fótum meg-
inréglur og' kærleiksboð kristindómsins. Að öðrum kosti
líkist hún kalkaðri gröf, sem er ásjáleg hið ytra, en
fyllt rotnun hið innra. Hún má ekki þola ranglæti í
neinni mynd, hvernig og hvar sem það birtist. Hún
verður að taka að sér málefni lítilmagnans, hinna fá-
tæku og smáu. Hún hefir misst tökin á liugum mann-
anna fyrir þær sakir, að hún hefir leitt hjá sér og látið
sem hún sæi ekki allskonar rangindi, er átt hafa sér
stað i félagslífinu og þjóðlífinu og viðskiftum þjóðanna.
Og hún nær ekki aftur þeim tökum fyr en hún gerist
brjóst fyrir þeim, sem erfiði og þunga eru hlaðnir,
talar máli þeiiTa af heilögum eldmóði og réttir hlut
þeirra.
Kristnir menn um viða veröld verða að strengja þess
heit að vinna að bræðralagi allra manna, liver sem kyn-
þáttur þeirra er, hörundslitur, trúarjátning eða staða í