Kirkjuritið - 01.12.1946, Blaðsíða 20
Nóv.-Des.
Nýir heiðursdoktorar í guðfræði.
Á háskólahátíSinni 1. vetrardag var lýst doktorskjöri
þeirra dr. Arne Möller skólastjóra í Haderslev og séra
Friðriks Friðrikssonar, framkvæmdarstjóra K.F.U.M. í
Reykjavík, með þessum formála:
Dr. Arne Möller hefir lagt veigamikinn skerf til rann-
sókna á kristilegum bókmenntum íslands með ritum
sinum um íslenzkan sálmakveðskap frá uppliafi og um
Hallgrím Pétursson og Passíusálma hans og um Jón Vída-
lín og postillu lians. Eru rannsóknir hans og niðurstöð-
ur með þeim ágætum, að jafnan mun vterða tekið tillit lil
þeirra og meira og minna á þeim byggt. Vill guðfræðis-
deildin þakka það með hæsta lieiðri, sem hún ræður
}7fir.
Séra Friðrik Friðriksson liefir um meir en aldar-
helming helgað Guðs kristni alla krafta sína með fórn-
fúsum og frábærum hætti, sem kunnur er alþjóð á ís-
landi. Hann er i senn: Æskulýðsleiðtogi af Guðs náð,
ágætur ritliöfundur og sálmaskáld, svo að nafn lians
mun verða ógleymanlegt í kirkjusögu Islands. Hann er
einnig mjög vel lærður maður og hefir hvarvetna með
störfum síum og framkomu allri erlendis aukið hróður
þjóðar vorrar. Fyrir þvi vill guðfræðisdeildin votta lion-
um virðingu sina og þökk með mesta iieiðri, sem hún
ræður yfir.
Dr. Friðrik Friðriksson var viðstaddur og mælti
nokkur þakkarorð á latínu, er dr. Ólafur Lárusson,
rektor Háskólans, hafði afhent honum doktorsskjal og
doktorshring. Má telja vel fallið, að þau orð geymist i
Kirkjuritinu: