Kirkjuritið - 01.12.1946, Blaðsíða 70
364
Richard Beck:
Nóv.-Des.
ýmsum stöðum í Norður-Dakota, nú skólastjóri i Minto
þar i rikinu. Páll Theodor, f. 30. april 1911, stundaði
nám í háskólanum í Seattle (University of Washington)
með bókfærslu að sérgrein, og er nú bókhaldari lijá
stóru verzlunarfyrirtæki í Los Angeles, en stundar jafn-
framt framhaldsnám í sinni grein.
Börnin af öðru hjónabandi eru: Sigrún Ólöf, fædd
18. október 1916, útskrifuð af háskólanum í Seattle með
liæsta lieiðri 1935, liefir verið kennari á gagnfræðaskól-
um í Washington-ríki, einnig stundað hljómfræði og
píanóspil. Petrína Aurora, f. 1. febrúar 1918, útskrif-
ist af Washington-háskólanum 1938, stundaði siðan
framhaldsnám þar í bókavarðarfræðum (Lihrary
Science) og' er nú bókavörður við Frances Shimer
College í Mount Carrol, Illinois. Frederick Arlan, f. 1.
september 1924, afburðanámsmaður, er varð efstur af
nær 500 nemendum við fulnaðarpróf á Ballard gagn-
fræðaskólanum í Seattle; einnig bar hann sigur úr l)ýt-
um í allsherjar samkeppni um námsverðlaun frá eigi
færri en þrem þjóðkunnum amerískum menntastofn-
unum, meðal þeirra Harvard College (menntaskóladeild
Harvard-háskólans), og hóf þar nám liaustið 1941, og
vann þar annað ár sitt hin mikilsmetnu námsverðlaun,
„The Jacob Wendel SchoIarship“; eftir sérstakt nám í
japönsku, gekk hann í þjónustu ameríska sjóhersins á
stríðsárunum, en er nú um það bil að vera leystur úr
herþjónustu og hyrjar aftur nám sitt á Harvard á þessu
hausti.
Verkin hera því vitni, að séra Kristinn K. Ólafsson er
atkvæðamikill merkismaður, en hitt er þó eigi síður
verðugt frásagnar, að liann hefir verið vaxandi maður
andlega, að viðsýni og umburðarlyndi í skoðunum. Ætla
ég, að honum sé rétt lýst í eftirfarandi orðum úr ýtar-
legri og athyglisverðri afmælisgrein um hann sextugan
(Lögberg, 26. sept. 1940), eftir þáverandi sóknarbarn