Kirkjuritið - 01.12.1946, Blaðsíða 51
Kirkjuritið.
Sýn Vasils.
345
Skurtu gerði sjálfur krossmark fyrir sér.
„Vasil", kallaði hann. „Vasil, hvað sérðu í sólinni, sem er að
rísa“.
Vasil sneri sér að honum — undursamleg birta blikaði í aug-
um hans, en hann svaraði engu. Og aldrei fékk Skurtu að vitdj
um sýnina, sem Vasil sá, er hann horfði í hvel sólarinnar, sem
var að koma upp.
Á. G. þýddi.
tííí
Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða
Aðalfundur Prestafélags Yestfjarða var lialdinn á ísafirði laug-
ardag og' sunnudag 21.—22. sept.
Aðalmál fundarins var altarissakramentið. Hóf Einar Sturlaugs-
son prófastur umræður um það, og tóku síðan margir til máls.
Séra Jón Kr. ísfeld frá Bíldudal hafði framsögu um bindindis-
mál. Var samþykkt tillaga í þá átt að skora á Alþingi og ríkis-
stjórn að láta fara fram hagfræðilega rannsókn á tjóni því, sem
leiðir af sölu og' neyzlu áfengis í landinu, og síðan þjóðarat-
kvæðagreiðslu um algert áfengisbann á íslandi.
Séra Jón Ólafsson prófastur í Holti benti á nauðsyn þess, að
framkvæmdir þær, sem ákveðnar hefðu verið á Hrafnseyri,
yrðu þegar hafnar á næsta ári, því að ella gæti svo farið, að
staðurinn færi í eyði. Samþykkt var að skora á ríkisstjórnina að
hraða þessum framkvæmdum sem mest.
Jónas Tómasson tónskáld flutti erindi á fundinum um kirkju-
kóra og kirkjusöng á Vestfjörðum.
Samþykkt var að gefa út ársrit félagsins „Lindina“ á þessu ári.
Messur voru fluttar á sunnudag á ísafirði og í Hnífsdal. Þeir
séra Einar Sturlaugsson og séra Jón ísfeld prédikuðu, en séra
Þorsteinn Björnsson þjónaði fyrir altari.
I stjórn félagsins voru kosnir:
Séra Eiríkur J. Eiríksson, Núpi, formaður.
Séra Einar Sturlaugsson prófastur, Patreksfirði, féhirðir.
Séra Jón Ivr. ísfeld, ritari.
íííí -