Kirkjuritið - 01.12.1946, Blaðsíða 65
Kirkjuritið.
Séra Ivristinn K. Ólafsson.
359
stormur um liann staðið, og fer svo löngum i félagsmál-
um, þegar í hlut eiga skapríkir menn og stefnufastir.
Séra Kristinn er einnig ritfær í hezta lagi, og hefur í
tvo áratugi átl sæti í ritstjórn Sameiningarinnar, mál-
gagns Kirkjufélagsins, og lagt drjúgan skerf til lesmáls
ritsins. Er þar að finna fjölda margvíslegra ritsmíða
eflir hann, frumsaminna og' þýddra: — erindi, ræður
og ritgerðir um trúarmál og' menningarleg efni, forseta-
skýrslur, kirkjulegar fréttir, hókafregnir og ferðasögur.
Einnig hafa ræður og ritgerðir eftir hann birzt í öðr-
um tímaritum vestan liafs, svo sem Almanaki Ö. S.
Thorgeirssonar, og í vestur-íslenzku vikublöðunum,
einkum Löghergi. Hefir hann ágætl vald á rituðu ís-
lenzku máli, ekki sízt þegar þess er gætt, að hann er
fæddur og uppalinn vestan hafs, en skýr hugsun og
skipuleg framsetning auðkenna rithátt lians.
Meðal merkra ritgerða lians, sem allar liafa komið í
Sameiningunni, eru hinar vel sömdu og skilningsriku
minningargreinar iians um fallna samlierja og' vini, svo
sem dr. Björn B. Jónsson, fyrirrennara tians í forseta-
emhætti Kirkjufélagsins, séra Jóhann Bjarnason og séra
Hans B. Thorgrimsen. í sama anda og um allt hin
drengilegasta er einnig grein i Sameiningunni, er hann
i'itaði um dr. Rögnvald Pétursson látinn. Af slíkum rit-
gerðum séra Kristins frá síðustu árum má nefna ágætar
greinar iians um séra Steingrím N. Tliorláksson, annan
fyrirrennara hans í forsetaembættinu („Leiðtoginn“ í
Minningarritinu um hann, 1943), uin Jóhannes S. Björn-
son kennara, mág liöfundar í Almanaki Ó. S. Tliorgeirs-
sonar, 194fi, um dr. Hjört Thordarson raffræðing (í
Tímariti Þjóðræknisfélagsins, 1946) og' inngangsritgerð-
ina að kvæðasafni séra Jónasar A. Sigurðssonar, sem
nú er í prentun í Winnipeg. Allar ofannefridar greinar
eiga sammerkt í því, að höfundur gerir sér far um og
fekst mæta vel að túlka skapliöfn og lífsskoðanir þeirra