Kirkjuritið - 01.12.1946, Síða 41

Kirkjuritið - 01.12.1946, Síða 41
Kirkjuritið. Sýn Vasils. Eftir Maríu Rúmenadrottningu. Það var nótt. Stormbj'ljir næddu um sléttuna, og það var nístingskalt. Hátt, liátt uppi blikuðu stjörnurnar, örsmáar, eins og þaer hefðu hörf- að sem allra lengst frá kuldanum á jörðinni, en djúp fannbreiðan yfir grundunum var svo hvít, að fölvan ljóma lagði af. Oðru hvoru ýfði vindurinn mjöllina í blundi og þyrlaði henni beint upp í loftið, eins og hún væri að leitast við að losna við kvalara sinn. Skuggaleg, dapurleg nótt, ein af þeim nóttum, er menn geta í- niyndað sér anda á ferli. Þegar veðurgnýinn lægði, mátti heyra dunur við og við berast um nóttina — skotdrunur í fjarska, sem boðuðu stríð. Rétt við brautina, sem greina mátti jafnvel um nóttina eins og dökka rák eftir fótatraðk um mjallbreiðuna, sat hermannaflokk- ur, skjálfandi af kulda, í þyrpingu um hálfkulnað bál. Veðurofsinn virtist hafa lagí þá í einelti og þyrlaði um þá kóf- inu eins og freyðandi brimi að kletti. Hermennirnir höfðu brett kragana upp að eyrum og húfurnar sem lengst ofan á enni, en hvorki föt né feldur gátu varið þá ísköldum næðingnum. Það var alls rúmur tugur af hermönnum — 3—4 gráskeggir og einn kornungur maður — sem héldu vörð um fáeina tötralega fanga, er sátu umhverfis hálfkulnaðar elsglæður, hnípnir og hrygg- ir að sjá. Þeir hnipruðu sig og hvíldu höfuðin á hnjánum og vörðu svo útlendingsandlit sín í senn hríðinni og augnaráði þeirra, sem 'irtu þá fyrir sér með vorkunnsemi, blandinni fyrirlitningu. Ber ar hendur þeirra voru bólgnar og sprungnar af frostinu, og þeir skulfu af kulda, harmi og ótta — ef til viH af öllu í einu. Verðirnir þeirra þrekvöxnu veittu þeim litla athygli. Þeir voru að tala í storminum slitróttum orðum til eina unglingsins í flokki sínum. Hann stóð og haliaði sér fram á byssu sína, eins og1 smal- ar að sumrinu fram á stafinn sinn. Hann var mjög drengjalegur, 18 eða 19 ára ef til vill. Hann starði út í nóttina, og var dreymandi svipur í stórum, grænum augunum. Hríðarflyksurnar lömdust um hann, settust í lög á loð-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.