Kirkjuritið - 01.12.1946, Page 49

Kirkjuritið - 01.12.1946, Page 49
KirkjuritiS. Sýn Yasils. 343 hann hafði með miklum erfiðismunum dregið að um svo langan veg. Honum rann ekki í brjóst. Þótt kuldinn hefði lagzt á gáfur hans, sem aldrei voru tiltakanlega skarpar, þá var hann nú samt að íhuga vandamál lífsins. Af hverju var stríð? Af hverju þjáningar, kuldi og fórnir, er líf- ið gat verið unaðslegt? Af hverju? Af hverju? Af hverju var Guð á himnum of langt frá? Af hverju tákn, hégiljur og hleypidóm- ar, sem engin ljós merking er í né neitt raunverulegt gagn? Af hverju hatur þjóða í milli? Af hverju dauði og allskonar and- styggð? Hvers vegna? Hvers vegna? Vindurinn æddi umhverfis hann, og Vasil lyfti iiðru hverju loppinni hendinni til að sópa snjónum frá augunum. ílversvegna kemur vetur eftir sumar? Hversvegna fjarlægð og þrár og það, sem aldrei getur aftur orðið? Vasil var ráðþrota að skilja það. Hann settist upp. Af hverju var nóttin svo dimm? Hvað átti allt þetta að þýða? O, en þarna yfir frá, þar var daufur bjarmi. Var nú dagsbrún að rísa? Var þessi banvæna næturvaka brátt á enda? Vasil horfði með ákefð á ljósið, sem hann þóttist sjá þarna beint fyrir handan — í fjarska — var það afturelding? Gat það í raun og veru verið afturelding? Það breiddist ekki úi, en sýndist þó hreyfast — það hreyfðist. Það nálgaðist. Það var á leið t i 1 h a n s . Þegar Vasil reyndi á eftir um hábjartan dag að segja frá því, sem fyrir hann bar, þá vildu hinir, sem höfðu verið sofandi, aldrei allskostar trúa sögu hans — og þó höfðu þeir verið sofandi hinir, en Vasil vakandi. En svona er maðurinn — eins og Tómas forð- um: Hann verður að taka á til þess að geta trúað ..... Það sem Vasil sá var hvít vera, er kom rakleitt til hans yfir snjóinn, hvít vera, sveipuð ljósi öll — og sjálf var veran svo björt og Ijómandi, að Vasil fékk aldrei skilið, að hún skyldi ekki vekja hina af svefninum. Löng ljósrák varð eftir í slóðinni, er veran leið áfram — dýrð- arbraut, stigin helgum fótum .... Því að það var manns-sonurinn, sem var að koma yfir snjóinn til Vasils — það var sonur Guðs. Hann kom handan frá nóttinni — svo dýrleg vera, að Vasil féll á kné, þreif húfuna af höfði sér og spennti greipar krókloppn- um höndum. 011 þjáning var gleymd, allt hafrót hjartans, allar efasemdirn- ar voru gleymdar, allar spurningarnar, sem höfðu angrað sál hans. Nú var hann ekkert annað en vökumaður í dimmunni, týnt

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.