Kirkjuritið - 01.12.1946, Side 69

Kirkjuritið - 01.12.1946, Side 69
Kirkjuritið. Séra Kristinn K. Ólafsson. 3(53 var sæmdur Riddarakrossi Fálkaorðunnar árið 1929 og' Stórriddarakrossi árið 1939. Þá er liann lét af forseta- starfi í Kirkjufélaginu árið 1943, var liann einum rómi kosinn heiðursforseti þess félagsskapar i þakkarskyni fyrir langt og merkilegt starf í þágu hans. Séra Kristinn er maður vinfastur, og' lýsir sér þar sent annars staðar heilsteypt skapgerð hans, gestrisinn og hinn skemmtilegasti heim að sækja. Heimilisfaðir er hann ágætur og hefir verið gæfumaður í hjúskaparlífi sínu, i þeim skilningi, að hann liefir eignast ágætiskon- ur, en jafnframt orðið að drekka af beiskum Itikar sorg- arinnar í þeim efnum, því að liann hefir misst tvær þeirra, en liann er maður þríkvæntur. Fyrsta kona lians var Sigrún Anderson, dóttir Ólafs Anderson (Arngrimsson) frá Búastöðum í Vopnafirði, kaupmanns í Minneota, Minnesota. Þau giflust 14. júní 1905, en hún dó fi. april 1913, að allra dómi hin ágætasla kona og vel látin. Önnur kona séra Kristins var Friðrikka Sigurgeirs- dóttir, Björnssonar og Guðfinnu Jóhannesdóttur frá Tjörn í Aðal-Reykjadal, mikilsmetin gáfu- og atkvæða- kona; þau giftust 2. nóv. 1915, en iiún lézt eftir langa vanheilsu 12. nóv. 1942. Nýlega kvæntisl séra Kristinn þriðja sinni, ekkju að nafni Mrs. Etliel PJiillips, af gömlum og góðum amer- ískum ættum. Sex eru börn séra Kristins, hin mannvænlegustu og vel gefin, og liafa notið ágætrar menntunar. Börnin af fyrsta hjónabandi lians eru: Séra Erlingur Kristinn, f. 5. marz 190fi, útskrifaður al' St. Olaf College 1926, stundaði síðan guðfræðinám og prestvígðist 1931, þjón- aði um sex ára skeið enskum söfnuði i Juneau, Alaska, en liefir síðan verið slíólasljóri og yfirkennari í alþýðu- og gagnfræðaskólum á ýmsum stöðum á Vesturströnd- inni. Marino Ólafur, f. 28. des. 1907, útskrifaður af St. Olafs College 1930, liefir verið kennari og skólastjóri á

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.