Kirkjuritið - 01.12.1946, Side 77

Kirkjuritið - 01.12.1946, Side 77
Kirkjuritið. Fréttir. 371 Norrænn prestafundur var haldinn í Björgvin 28.—30 ágúst. Fulltrúar á honum fyrir hönd Prestafélags íslands voru þeir: Séra Jakob Jónsson, séra Sigurbjörn Á. Gíslason og séra Sigurður Guðmundsson. Séra Jakob ritar um fundinn i Kirkjublaðið. Danska prestafélagið álti hálfrar aldar afmæli í októbermánuði síðastliðnum, og var þess minnzt með hátíðahöldum í Kaupmannahöfn. Fulltrúi Prestafélags íslands var séra Þorsteinn L. Jónsson, og mun Iiann síðar skrifa um þau í Kirkjuritið. Kirkjusaga íslands á ensku. Dr. John Hood, sem var hér lierprestur á stríðsárunum, liefir nýlega skrifað á ensku kirkjusögu íslands. .Bókin hefir, sem vænta má, mikinn fróðleik að færa útlend- ingum, og er þakkarverð. Hún ber vitni um eljan og natni og góðan hug til íslendinga. Saga 2 síðustu alda er hlutfallslega helzt til stutt. Fjársöfnun til byggingar æskulýðshallar á Húsavík. Séra Friðrik A. Friðriksson prófastur hefir síðustu árin beitt sér fyrir fjársöfnun til byggingar æskulýðshallar á Húsavík og orðið vel ágengt. Gaf safnaðarfólk hans 6000 kr. i þessu skyni á fimmtugsafmæli lians. Fjársöfnun til bágstaddra á meginlandi Evrópu er nú hafin. Ýmsar stofnanir hafa forustu, svo sem Þjóðkirkja íslands og Rauði krossinn. Mun mega vænta almennrar þátttöku, því að ægileg hungursneyð vofir yfir Þýzkalandi og Austurríki. Kirkjuritið hvetur alla til þess að láta eitthvað af liendi rakna og það sem fyrst. Fögur gjöf. Frú Jónína Ólafsdóttir frá Hjálmliolti í Árnessýslu hefir ný- lega ákveðið í arfleiðsluskrá, að stofnaður skuli af öllum eigum hennar Styrktarsjóður Jónínu Ólafsdóttur og Margrétar Sigurð- ardóttur. En Margrét er dóttir hennar, dáin 8. apríl 1944. Fé sjóðsins skal varið til að styðja að eflingu kristilegs hugarfars í landinu. Minningarathöfn á Þingvöllum. Á afmælisdegi Jónasar Hallgrímssonar var haldin minning- arathöfn að Þingvöllum og duft hans lagt þar í grafreitinn. Dr.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.