Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 68

Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 68
66 KIRKJURITIÐ til þess að blóm og aldini vaxi á þeim. Á vetuma var hann rétt eins og blaðlaust tré og hálfdautt. Gaddfreðin jörðin var ekki góð fyrir leikarann. Og eins og flugan, sem Marie de France kveður um, þoldi hann bæði hungur og kulda á veturna. En hann var hjartahreinn, og hann bar raunir sínar með þolinmæði. Hann hafði aldrei hugleitt uppruna auðæfanna og mis- jöfn kjör mannanna. Hann hafði þá bjargföstu trú, að ef þessi heimur væri vondur, hlyti hinn að vera góður, og í þessari von lifði hann. Hann fetaði ekki í fótspor þjófóttra loddara og töframanna, sem seldu sál sína djöflinum. Hann lagði aldrei Guðs nafn við hégóma, hann lifði heiðarlega, og þó að hann ætti enga konu, girntist hann ekki konu náungans, því að konan er hættuleg sterkum mönnum, svo sem augljóst er af sögu Samsons, sem sögð er í ritningunni. Satt að segja var hann ekki hneigður fyrir líkams- munuð, en honum var erfiðara að hafna vínkrúsinni en konunni. Hann var engan veginn drykkfelldur, en honum þótti gott að fá sopa, þegar heitt var í veðri. Hann var vænn maður, óttaðisUGuð og dýrkaði af heilum hug hina blessuðu mey. Aldrei lét hann hjá líða, þegar hann kom inn í kirkju, að falla á kné frammi fyrir líkneski móður Drottins og mæla til hennar þessi bænarorð: ,,Frú mín, gæt mín, þangað til Guði þóknast að ég deyi, og þegar ég er farinn héðan, veit mér þá að öðl- ast sælu paradísar." n. Svo var það eitt kvöld; það hafði rignt um daginn og hann gekk, dapur í bragði og niðurlútur, og bar undir hendinni gamla klæðið, sem hann hafði vafið utan um kúlurnar sínar og handsöxin, og hann leitaði að einhverri hlöðu til að sofa um nóttina; ekki var nú um mat að

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.