Kirkjuritið - 01.04.1952, Page 10

Kirkjuritið - 01.04.1952, Page 10
Svo langa stund hefi ég með yður verið, Svo langa stund hefi ég með yður verið, og þú, Filippus, þekkir mig ekki? (Jóh. 14, 9). Þessi spurning Jesú var svar við þungri þrá, þránni eftir að þekkja upphaf lífsins, tilgang þess og takmark, sem vísindi allra alda hafa enn látið ósvarað. Við henni átti Jesús svar. Algilt. Fullkomið. Það er eins og kristniboðinn sagði við konunginn heiðna og hirð hans: Þið sjáið fuglinn, sem kemur inn um glugg- ann. Hann flögrar nokkur vængjatök yfir langeldunum ykkar hér í höllinni og hverfur svo aftur út í náttmyrkrið. Svona er lífið. Þið spyrjið: Hvaðan kemur það? Hvert fer það? Þið vitið það ekki, og harmur nístir hjörtu ykkar. Viljið þið þekkja hann, sem getur svarað þessum spurn- ingum og þannig kennt ykkur að lifa? Hann heitir Jesús — Hvíta-Kristur. ★ Nú var það Filippus postuli, sem bað Jesú sjálfan: Herra, sýn þú oss föðurinn, og þá nægir oss. Það er um kvöld í Jerúsalem. Uppi í loftsal, búnum hægindum, hvílir Jesús og lærisveinar hans á legubekkjum að lágu borði. Úti er tunglsljós og stjömubjart yfir hvít- um húsaþökum, en inni logar á lömpum. Skilnaðarmáltíð hefir farið fram, heilög, dýrleg. Samræður halda áfram um guðleg mál. Allir mæna til Jesú, og hann horfir djúpt í hjarta hvers og eins. Það er eins og allt, sem þeir höfðu lifað saman, rifjist upp þessa stund.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.