Kirkjuritið - 01.04.1952, Page 21
SÉRA HAUKUR GÍSLASON
85
Þegar ég minnist vinar míns og skólabróður, síra Hauks,
er yfir fagran, blessunarríkan dag að líta. Sá dagur hófst,
er Haukur fæddist 14. júlí 1878 að Þverá í Dalsmynni.
Voru foreldrar hans Gísli Ásmundsson, bróðir Einars í
Nesi, og Þorbjörg Olgeirsdóttir. Átti Haukur til þeirra
að telja, er með dugnaði og tápi ruddu sér veg, en var
ekki síður um það hugað að greiða öðrum veginn.
Það er fagur kapítuli í þjóðarsögu vorri, þar sem sagt
er frá því, hvernig foreldrar víðs vegar í byggðum Islands
vöktu yfir heill uppvaxandi kynslóðar. Menn hljóta oft að
undrast þann áhuga og hina ríku þrá, sem ávallt fann,
Vegna þeirrar fórnar, sem kærleikanum fylgir, hamingju-
leið, sem börnin skyldu feta. Þannig var samband foreldra
°g systkinanna á Þverá. Umhyggju foreldranna var svar-
að með marksækinni orku barnanna.
Enn eru á lífi systkinin tvö, frú Auður, ekkja síra Árna
Jónssonar prófasts frá Skútustöðum, en hann var síðustu
ar sevinnar prestur að Hólmum í Reyðarfirði, og bróðir
frú Auðar, Garðar Gíslason stórkaupmaður. Minningin
geymist um bræðuma, Ásmund prófast og Ingólf lækni.
Má hér með sanni tala um dáðríkt starf hinna þjóðkunnu
systkina. Yngstur þeirra var síra Haukur, og ævi alla
JyJgdi honum hressandi æskublær. Fyrir sjónum mínum
Var hann ávallt ungur, gleðin og hinn mildi hlátur sagði
frá heilbrigðu hugarfari. Það var ætíð svo í kynnum mín-
Um við síra Hauk, að ég hlaut að minnast orðanna: „Glatt
hjarta gjörir andlitið hýrlegt."
Stúdent varð Haukur árið 1901. Beindist hugur hans að
guðfræðinámi og hann sá fagran draum rætast, er hann
héJt til Kaupmannahafnar. Ári síðar kom ég þangað í
sömu erindum. Voru þar þá fyrir 3 íslenzkir guðfræði-
nemar, Gísli Skúlason, Guðmundur Einarsson og Haukur
Gíslason. Var Gísli þá að lesa undir embættispróf, sem
hann lauk nokkrum mánuðum eftir að ég kom til Hafnar.