Kirkjuritið - 01.04.1952, Side 46
110
KIRKJURITIÐ
móði yfir beinunum. Er hann gerir svo, færast þau sam-
an, lífsandi kemur í þau, þau lifna við og rísa á fætur.
Svo mun Guð einnig fara að með ísraelsþjóðina. Hann
mun gefa henni anda sinn, til þess að hún lifni við aftur
og megi snúa heim til lands síns (Ezk. 37,1-14). — Veldi
Babyloníu stendur ekki lengi traustum fótum. Persar und-
ir forystu Kyrosar sækja fram á sigurför. Mikill spámað-
ur kemur fram meðal Israelsmanna í herleiðingunni. Nafn
hans er óþekkt. Spádómar hans hafa varðveitzt og þeim
verið valinn staður aftan við spádómsbók Jesaja. Ritin
hafa síðar runnið saman í eitt rit, sem ber nafn Jesaja.
Þess vegna hefir spámanninum óþekkta verið valið heit-
ið: Devtero-Jesaja, eða Annar-Jesaja. „Huggið, huggið
lýð minn, segir Guð yðar. Hughreystið Jerúsalem og boð-
ið henni, að áþján hennar sé á enda, að sekt hennar sé
goldin“ (Jes. 40,1-2). Þannig hefst rit þessa spámanns.
Guð hefir tekið Israelsþjóðina í sátt, og hann mun leiða
hana heim til landsins, sem hann gaf forfeðrunum. Guð
hafði aldrei gleymt þjóð sinni. „Því, hvort fær kona gleymt
brjóstbami sínu, að hún miskunni eigi lífsafkvæmi sínu.
Og þó að þær gætu gleymt, þá gleymi ég þér samt ekki“
(Jes. 49,15). Svo talar Guð fyrir munn spámannsins.
Refsitíminn er á enda. „I ofurreiði minni byrgði ég auglit
mitt fyrir þér um stund, en með eilífri líkn miskunna ég
þér“ (Jes. 54,8). — Spámaðurinn skoðar dýpra. Israel
hafði ekki til einskis þolað þjáningar og niðurlægingu.
Herleiðingin hafði dreift þjóðinni meðal heiðingjanna, og
þar gat trú hennar orðið „ljós fyrir þjóðirnar til þess að
opna blind augu“ (Jes. 42, 6-7). ísraelsþjóðin hafði alltaf
haft stóru hlutverki að gegna, en stærstu, er hún sjálf
gekk í gegnum þyngsta bölið. — Spámaðurinn hafði kom-
izt að þeirri niðurstöðu, að þjáning eins fær leitt til hjálp-
ræðis annars. Þessu lýsir spámaðurinn í Ijóði sínu um
„þjón Jahve“. „Hann var særður vegna vorra synda, og
kraminn vegna vorra misgjörða" (Jes. 53, 5). — Ekki skal
neinum getum leitt að því hér, hvern spámaðurinn muni