Kirkjuritið - 01.04.1952, Side 52

Kirkjuritið - 01.04.1952, Side 52
116 KIRKJURITIÐ Mennimir hafa enga afsökun. Guð svarar jafnvel bænum heið- ingjanna á því máli, sem þeir mættu skilja. Heiðnir menn láta bera sig út í sólarljósið í andlátinu og fela önd sína. Honum, sem sólina hefir skapað. Þessir vitringar voru stjörnufræðingar — og urðu gagnteknir af dýrð himinsins — um nætur. Það varð einnig íslenzki spekingurinn með bamshjartað, er svo söng: Nú er fögur næturstund, nú ber skrautið frána, þakið bláa’ er þandi mundi, þín yfir höllu mána. Lít ég sveima hæða hyl herinn alskínandi, því vill hefjast hæða til hugurinn lofsyngjandi. Og þegar þessir heiðnu menn virtu fyrir sér dýrð himinsins að næturlagi, sáu þeir nýja stjömu og settu þetta í samband við komu nýs konungs og frelsara og friðarhöfðingja inn í þjáða veröld, og lögðu upp í langa og áhættusama og erfiða ferð til að leita hans. Guð vill, að allir menn verði frelsaðir. Hann vill ekki dauða nokkurs syndugs manns. Guð á allar mannssálir — og þolir ekki, að nokkur maður bíði tjón á sálu sinni. Og þess vegna leitar hann þeirra til að frelsa þær. Og eins og sólar- Ijósið fær litblæ listmáluðu kirkjurúðunnar og skænisins í heið- arbýlis moldarkofanum á leið sinni inn í myndavél mannsaug- ans, þannig aðæfir opinberun Guðs og sálnaleit hans sig við- tökuhæfileikum og skilyrðum mannshjartans. Hann lætur sig aldrei án vitnisburðar. En hvemig leita mennirnir Guðs? Vitringarnir leituðu Hans með trúmennsku. Spádómsorðið, sem var ljós á vegum þeirra, bar daufa birtu. Stjömuspádómur Bíleams (IV. Mós. 24,1?) um stjömuna, sem risa myndi upp meðal lítillar og fyrirlitinn- ar þjóðar. Getur nokkuð gott komið frá íslandi? Og þetta litla Ijós leiddi þá til Júdeu, Jerúsalem og Betlehem — vegna þess að þörfin var svo heit og lifandi fyrir Frelsara um allan heim. Og þeir, sem leita með trúmennsku, munu finna það, sem Þeir leita að, að lokum. Þeir gerðu sig ánægða með að taka eitt og eitt stutt skref í einu, varðveita leifamar, sem afgangs höfðu

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.