Kirkjuritið - 01.12.1953, Page 19
t
Dr. theol.
Sigurgeir Sigurðsson
biskup.
Fœcldur 3. ágúst 1890. Dáinn 13. október 1953.
In memoriam.
Helztu æviatriði.
Sigurgeir Sigurðsson var fæddur að Túnprýði á Eyrar-
bakka 3. ágúst 1890. Foreldrar hans voru Sigurður Eiríks-
son regluboði, þjóðkunnur áhugamaður um bindindismál,
°g kona hans, Svanhildur Sigurðardóttir, hin ágætasta
húsfreyja og móðir.
Hann lauk stúdentsprófi vorið 1913 og embættisprófi
í guðfræði í febrúar 1917. Sama ár, 7. október, vígðist
hann aðstoðarprestur séra Magnúsar Jónssonar á ísafirði.
Anð eftir, 11. marz, fékk hann veitingu fyrir Isafjarðar-
Prestakalii. Jafnframt þjónaði hann Bolungarvík til árs-
l°ka 1925, er hún var gerð að sérstöku prestakalli. Enn-
fremur hafði hann með höndum aukaþjónustu í ögurþing-
Um frá fardögum 1924 til 1. apríl 1925 og í Staðarpresta-
kalli í Súgandafirði frá 1. september til ársloka 1938.
ísafjarðarprestakalli þjónaði séra Sigurgeir með mikl-
Um dugnaði og stakri skyldurækt í 21 ár, eða til ársloka
1938. Auk þess gegndi hann mörgum öðrum störfum.
17