Kirkjuritið - 01.12.1953, Síða 51
SIGURGEIR SIGURÐSSON BISKUP
273
og kapellur, þar á meðal Akureyrarkirkja og Laugarness-
kirkja. Og nú, síðan losað var um hömlurnar, hefir verið
hafin smíði mjög margra kirkna. Má þar nefna: Selfoss-
kirkju, Neskirkju í Reykjavík, Svalbarðskirkju, Dalvíkur-
kirkju, Hofsósskirkju o. fl.
Mjög mikið hefir og á þessum árum verið unnið að stór-
felldum endurbótum eldri kirkna, svo og að fegrun þeirra
og skreytingu á ýmsan hátt. Mjög margt ágætra gripa
hefir kirkjunum einnig gefizt á þessu tímabili og sýnir
það ótvírætt vaxandi hlýhug í garð kirkjunnar.
Eigi verður svo skilizt við afskipti biskupsins af kirkju-
byggingarmálum landsins, að eigi sé minnzt á Hallgríms-
kirkju á Skólavörðuhæð. Bygging þeirrar kirkju, er verða
skyldi stærsta og veglegasta kirkjuhús á íslandi, var eitt
af höfuð áhugamálum hans fram til hinztu stundar. Beitti
hann sér af alhug og dugnaði að málinu. Er nú svo komið,
að hluti af kór kirkjunnar var reistur fyrir nokkrum ár-
um og er notaður sem guðsþjónustuhús Hallgrímspresta-
kalls. Jafnframt er nú hafin bygging sjálfrar höfuðkirkj-
unnar.
Annað mál, sem biskupinum var mjög hjartfólgið, var
bygging Kirkjuhúss í Reykjavík, er verða skyldi miðstöð
hins kirkjulega starfs í landinu. Beitti hann sér fyrir fjár-
söfnun í þessu skyni. Var sá sjóður um síðastliðin áramót
rúmlega 164 þúsund krónur.
Fimmtíu og sjö guðfræðingar voru vígðir prestsvígslu
í tíð herra Sigurgeirs, og mun hann sjálfur hafa vígt 55
þeirra.
Á biskupsárum sínum vísiteraði hann öll prófastsdæmi
landsins nema fjögur. Og hið fimmta vannst honum ekki
tími til að vísitera nema að nokkru leyti nú á síðastliðnu
hausti. I hverri kirkju, sem hann heimsótti, flutti hann
eigi aðeins prédikun, heldur og hvetjandi erindi um kirkju
°g kristindómsmál. Er ekki ofsagt, að vísitazíur hans voru
ekki aðeins frábærlega vel sóttar af sóknarfólki, hvar sem
hann kom, heldur ávann hann sér alls staðar vináttu,
19