Kirkjuritið - 01.12.1953, Síða 69
Norrœnt bindindisþing,
hið 19. í röðinni, var haldið í Reykjavík síðastliðið sumar.
Sóttu það nálægt eitt hundrað fulltrúar frá hinum Norður-
löndunum, flestir frá Svíþjóð, og um eitt hundrað og
fimmtíu heimamenn. Þingið var sett með hátíðlegri at-
höfn í Þjóðleikhúsinu að kvöldi hins 31. júlí, en að öðru
leyti voru þingfundir haldnir í Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar. Flutt voru mörg og merkileg erindi af hálfu allra
Norðurlandaþjóðanna, um niðurstöður nýjustu áfengis-
rannsókna af sænskum vísindamönnum, um þátt ríkisins
í áfengislausu samkvæmislífi og um áfengislöggjöfina á
Norðurlöndum af norskum fulltrúum, Finnar ræddu um
starfsaðferðir bindindissamtakanna, fulltrúi Dana um öl-
drykkju og bindindi, og Islendingur um kirkjuna og bind-
indishreyfinguna. Um sum erindin urðu all-fjörugar um-
ræður.
Meðal gestanna voru margir hinna merkustu forvígis-
menn bindindismálanna á Norðurlöndum, en einna mesta
athygli mun hafa vakið hin aldna bindindishetja Dana og
forvígismaður samtaka danskra bindindismanna, Adolph
Hansen, sakir áhuga síns, hjartahlýju og sannarlegs bróð-
uranda. Þá má nefna hinn virðulega fulltrúa Finna, Rafael
Holmström, dr. theol., sem var forseti næsta bindindis-
bings á undan, er haldið var í Helsingfors. Fleiri nöfn
verða ekki nefnd hér, en þeir, sem þingið sátu, og áttu
þess kost að kynnast nokkuð vinum vorum frá frænd-
bjóðunum, munu á einu máli um það, að þeir hafi auðg-
azt mjög af þeim kynnum og fundið fyrir mannval mikið,
er helgað hefir þessu mikilvæga málefni krafta sína.