Kirkjuritið - 01.12.1953, Síða 72
Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða
var haldinn á ísafirði dagana 12. og 13. september.
Fundurinn hófst með því, að formaður, séra Þorsteinn Jó-
hannesson próf. las Ritningarorð og bað bænar, en á undan
var sunginn sálmur.
Þá flutti formaður framsögu í aðalmáli fundarins: Kristin-
dómur og kristindómsfræðsla í barna- og unglingaskólum.
Umræður um þetta mál urðu miklar og stóðu mikinn hluta
fundartímans. í þeim umræðum kom fram sú skoðun fundar-
manna, að þeir teldu kristindómsfræðslu í mörgum skólum
mjög ábótavant. Það mætti m. a. kenna því, að ekki væri um
eins heppilegar kennslubækur að ræða, einkum í unglingaskól-
um, eins og þörf væri fyrir. Ennfremur hörmuðu fundarmenn
það, hversu lítil rækt væri lögð við það á ýmsum heimilum,
að búa börn undir kristindómsnámið í barnskólunum. Væri til
of mikils ætlazt af skólunum í þeim efnum, en of lítils af
heimilunum. — Þá var rætt um fermingarundirbúning, aðal-
lega með tilliti til þeirra kennslubóka, sem prestar legðu til
grundvallar þeirri fræðslu. Rætt var m. a. um hið nýja ,,kver“
Valdimars V. Snævars, og urðu menn ekki á eitt sáttir um
það, hversu fullnægjandi það gæti talizt.
Nokkuð var rætt um kristniboð, gildi þess og aðstöðu kristni-
boða til starfa.
Rædd voru fjármál félagsins.
Þá fór fram stjórnarkosning. Séra Þorsteinn baðst eindregið
undan endurkosningu. í hans stað hlaut kosningu séra Jón Kr.
ísfeld, Bíldudal. Endurkjömir voru: Séra Stefán Eggertsson,
Þingeyri, gjaldkeri, og séra Jóhannes Pálmason, Súgandafirði,
ritari. Varamaður stjórnar var kosinn séra Eiríkur J. Eiríks-
son, Núpi, Dýrafirði.
Fundinum lauk með því, að sunginn var sálmur, en síðan
las séra Jónmundur Halldórsson, Stað, Grunnavík, Ritningar-
orð og bað bænar, en að endingu var sungið sálmvers.