Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1953, Side 75

Kirkjuritið - 01.12.1953, Side 75
PRESTAFÉLAG ÍSLANDS 297 ast að rækja þær, þar sem þeim verður nú við komið, svo kostgæíilega sem frekast er unnt. Jafnframt beinir fundurinn því til stjórnar Prestafélagsins, að leggja fyrir næsta aðalfund tillögur um, hvernig húsvitjunum presta í f jölmennustu kaup- staðarsöfnuðunum yrði bezt fyrir komið.“ Séra Magnús Már Lárusson prófessor flutti á fundinum er- indi, sem hann nefndi: „Blað úr sögu siðbótaraldarinnar“. Var það einkar fróðlegt. Við morgunbænir síðara fundardaginn flutti séra Kristján Bjarnason frá Reynivöllum stutta prédikun út af Mark. 13, 33—37. Eftir hádegi þann dag flutti formaður framsöguerindi um kirkjumál á Alþingi og lagði fram í nafni Prestafélagsstjórn- arinnar nokkrar tillögur, sem fóru því næst til allsherjarnefnd- ar. En hana skipuðu. Séra Gunnar Ámason, formaður. Séra Einar Guðnason. Séra Garðar Svavarsson. Séra Jakob Jónsson. Séra Óskar J. Þorláksson. Eftir talsverðar umræður voru tillögurnar samþykktar í einu hljóði, eins og þær komu frá nefndinni, eða sem hér segir: 1. „Aðalfundur Prestafélags Islands telur það eignarán, að prestssetursjarðir séu skertar án samþykkis hlutaðeigandi prests né biskups, og skorar því á Alþingi að nema úr gildi lög um heimild til þess að taka eignarnámi og byggja á erfða- festu hluta af prestssetursjörðum." 2. „Aðalfundur Prestafélags íslands lýsir eindregnu fylgi við frumvarp Sigurðar Óla Ólafssonar alþingismanns, sem hann flutti að tilhlutan biskups á síðasta Alþingi, um kirkjubygg- ingasjóð. Telur fundurinn æskilegt, að framlag ríkissjóðs árlega sé tvö- falt hærra en í frumvarpinu segir, sökum mikilla þarfa safn- aðanna.“ 3. „Aðalfundur Prestafélags íslands skorar á kirkjustjórn- ina að undirbúa löggjöf, er miði að því að koma byggingar- °g ræktunarmálum prestssetranna í betra horf en verið hefir.“ Yms önnur mál voru rædd og samþykktar í einu hljóði þess- ar tillögur:

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.