Kirkjuritið - 01.12.1953, Blaðsíða 78
300
KIRKJURITIÐ
Stjórn Prestafélags íslands skipa nú:
Ásmundur Guðmundsson prófessor, formaður,
Séra Hálfdan Helgason prófastur, varaformaður,
Séra Jakob Jónsson, ritari,
séra Sveinbjörn Högnason prófastur og
séra Þorsteinn Björnsson frikirkjuprestur.
Hinn almenni kirkjufundur
var haldinn í Reykjavík dagana 16.—19. október. Þar fluttu
þeir erindi m. a. Gísli Sveinsson f. sendiherra, dr. Árni Árnason
læknir, Þórður Kristjánsson kennari og Sigurður Óli Ólafsson
alþingismaður. Ýms mál voru rædd og tillögur samþykktar,
sem hér segir:
1. Almenni kirkjufundurinn beinir þeirri áskorun til kennslu-
málastjórnarinnar að taka nú þegar til athugunar, hvort ekki
sé hægt að búa kristindómsfræðslunni veglegri sess og gera
hana notadrýgri með því,
að taka upp sérstaka kennslu í kristnum fræðum í yngstu
bekkjum barnaskólanna í stað þess að hafa hana með átthaga-
fræði, eins og nú tíðkast;
að haga kennslu í barnskólunum þannig um námsefni og
stundafjölda, að umferð sé lokið í námsefninu, þegar gagn-
fræðaskólarnir taka við;
að kennsla sé í kristnum fræðum í tveim fyrstu bekkjum
gagnfræðaskólanna ekki minni en tvær stundir á viku og ráð-
stafanir gerðar til þess, að hæfilegar námsbækur og kennslu-
tæki séu til á hverju stigi námsferilsins.
2. Hinn almenni kirkjufundur í Reykjavik 1953 telur mjög
æskilegt, að skipaður verði sem allra fyrst sérstakur prestur
við sjúkrahús og fangelsi Reykjavíkur til að annast guðsþjón-
ustur og sálgæzlu.
3. Hinn almenni kirkjufundur heitir á stjórnarvöld landsins,
að láta kirkju þjóðarinnar njóta réttar síns í hvívetna, sem
henni ber samkv. stjórnarskránni, svo að hún verði þess megn-