Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1953, Side 81

Kirkjuritið - 01.12.1953, Side 81
Bókarfregn. Valdimar V. Snævarr: Líf og játning. Bók þessi er kver handa fermingarbömum. Hefir höfundur varið miklum tíma til þess að semja hana og vandað svo verk sitt sem honum hefir verið fremst unnt. Má líta svo á, að hún sé runnin frá reynslu heillar ævi góðs og gáfaðs kristins manns við kennslu í kristnum fræðum. Hún er í fjórum aðalköflum, sem hér segir: I. Guð faðirinn. II. Guðssonurinn. III. Guð Heilagur andi. IV. Kirkjulegur fróðleikur. Langlengstur er II. kaflinn, og ritar höfundur í eftirmála þessar bendingar um hann: „Kennslustundirnar um Jesúm eiga að vera Biblíulestrar og samtalsstundir. Hvert barn þarf að hafa Nýja testamentið við höndina. Fyrst þarf að kenna börnunum að finna tilvitnaðar greinar, og eiga síðan tal við þau um þær. Eftir minni reynslu geta slíkar stundir bæði verið óvenju áhrifaríkar og skemmti- legar. í hverri stund ætti jafnan að syngja sálm og biðja stuttr- ar bænar.“ Ýmsir sálmar eru fléttaðir inn í kverið eða sálmsvers, og er það vafalaust kostur. Hitt getur aftur á móti jafnan orkað tvímælis, hvernig sálmavalið hefir tekizt. Tilgangurinn með þessum línum er aðeins sá að vekja athygli Presta á kverinu, en ekki að skrifa ritdóm um það. Til þess þarf að hafa notað þaö við fermingarundirbúning. Hafi höfundur þökk fyrir fallega bók handa æskulýð íslands. Á. G. Fréttir. Biskupsvísitazía. Biskupinn vísiteraði í haust kirkjur Kjalarnesprófastsdæmis, prédikaði að vanda að hverri kirkju og flutti erindi.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.