Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1956, Qupperneq 33

Kirkjuritið - 01.02.1956, Qupperneq 33
Scra ‘porvarður pormar scxtugur Hann fæddist 1. febrúar 1896, og voru foreldrar hans Guttormur bóndi og alþingismaður í Geitagerði í Fljótsdal Vigfússon, og k. h. Sigríð- ur Guðbjörg Anna Sigmundsdóttir. Þorvarður ólst upp í föðurhúsum, gekk síðan menntaveginn og lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1919. Guð- fræðipróf tók hann 1923. Var einn vetur kennari við unglingaskóla á Norðfirði. Vígður til Hofteigs á Jök- uldal 23. júní 1925. Sat þar síðastur presta til 1928, að hann fékk Laufás, en þar hefir hann verið síðan. Séra Þorvarður var vinsæll maður þegar á skólaárum. Hóf- sarnur, trúr, góðviljaður og drengur bezti. Hann hefir rækt em- bætti sitt af alúð og skyldurækni og stundað búskapinn jöfnum höndum. Hann er kvæntur ágætri konu, Ólínu Mörtu Jónsdóttur, asttaðri úr Rvík. Hafa þau eignast þrjá syni, prýðilega náms- og efnismenn. Nýtur fjölskyldan öll sannra vinsælda í prestakallinu. Eg kom á sólfögrum degi í Laufás í sumar. Rann þá í hug visan forna, sem ég veit að séra Þormar mun taka undir: Laufás minn er listabær, lukkumaður sá honum nær, einkum þegar aldin grær, og allt á móti manni hlær. Aðeins leitt að sjá, hve gamla, fallega bænum er illa við hald- ið. En margt húsa hefir verið reist þar í tíð séra Þorvarðar. (Þar er nú líka að rísa nýbýli). Samtímis mér komu margir að Lauf- asi, 0g var Jæim öllum vel fagnað af prestshjónunum, sýndur staðurinn og veittur beini. Munu margir minnast þaðan slíkra ánægjustunda. Vér biðjum séra Þorvarði blessunar og heilla í framtíðinni. G. Á.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.