Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1956, Qupperneq 42

Kirkjuritið - 01.02.1956, Qupperneq 42
88 KIRK JURITIÐ tveggja innlendra höfðingja, er hann heilsaði þeim. „Það var að vísu,“ sagði hann, „eflaust til þess ætlazt, að ég gerði þetta rétt til málamynda. En ég gerði það alveg svikalaust, enda alveg skapaður til þess.“ Hispursleysið, góðvildin og glettnin vekur dr. Fisher hvar- vetna mannheill og góðfýsi. Haft er eftir kyndara á Queen Mary, að erkibiskupinn hafi haft ólíkt meiri áhrif með kynnisferðum sínum um skipið, heldur en predikun sinni á skipsfjöl. „Hann er nefnilega laus við alla ofmenntun," bætti hann við. Dr. Fisher sagðist vilja, að þetta yrði sett á legstein sinn. Erkibiskupinn er kvæntur, og á sex syni. Þau hjónin búa spar- lega hversdagslega, að sagt er, en halda að sjálfsögðu uppi mik- illi risnu. Hjónaband þeirra er hið bezta, enda er frúin ekki að- eins mikil húsmóðir, heldur góður félagi manns síns á ferðum hans. Biskup leggur ríka áherzlu á helgi hjónabandsins, og er mjög andvígur hjónaskilnaði. Hjúskaparmál Margrétar prins- essu og Towsends höfuðsmanns voru eitthvert vandasamasta og viðkvæmasta viðfangsefni, sem dr. Fisher hefir orðið um að fjalla. En einnig þá komst hann klaklaust milli skers og báru. Dr. Fisher mun meiri framkvæmdamaður en guðfræðingur, frekar af flokki dómaranna en spámannanna. En honum er gef- ið mikið af heilbrigðri skynsemi, og hann hefir bæði vilja og þrek til að ráða vel fram úr því, sem bíður úrlausnar. Hann er farsæll maður og giftudrjúgur, sem farizt hefir vel að stjórna sínu kirkjuskipi í villum og ósjóum, kirkjuhöfðingi, sem gengur ekki úr minni, að honum ber að þjóna. G. Á. Himinninn. Þú spyrð hvers sál mín leiti á himni. — Ég brosi í anda, en get engu svarað þér. Því líkt og ferskjublómið lætur berast með straumnum, berst ég til heims, sem þú hefir ekki hugmynd um. — Li Po. — (G. Á.).

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.