Kirkjuritið - 01.02.1956, Page 44

Kirkjuritið - 01.02.1956, Page 44
90 KIRKJURITIÐ Boðað var, að fyrsta i'itgáfa Biblíunnar á rússnesku eftir byltinguna kæmi út í byrjun þessa árs. Ekki er vitað um eintakafjöldann, en talið að hann skipti hundruðum þúsunda. Skorti ekki pappír, mun hann brátt kom- ast yfir milljónina, því að vænzt er mjög mikillar eftirspurnar. Nýr erkibiskup í Jórvík. Dr. Michael Rarnsay, biskup í Durham, hefir verið skipaður í það embætti. Er því almennt fagnað, enda er hann sagður kennimaður góður og kunnur rithöfundur. Ragnar Forbeck prestur í Osló fékk friðarverðlaun Stalins árið 1955. (180 þús. norskar krónur). Út af þessu hafa spunnizt nokkur blaðaskrif í Noregi. Sumir telja kristnum presti ekki sæmandi að þiggja verðlaun af einvöldum, sem hyggi á alheimsbyltingu. Aðrir kveða prestinn lofsverðan og alls góðs maklegan fyrir áhuga sinn á eflingu friðarins, og skipti engu máli, hvort hann hljóti viðurkenningu fyrir það úr „austri“ eða „vestri“. Vígsluneitun Bauns biskups í Vébjörgum í Danmörku til handa cand. theol Helga Jensen, sem Bodil Koch hefir skipað aðstoðarprest í Skive leiddi til harðra átaka í Danmörku. Hinir dönsku biskuparnir vildu í fyrstu ekki brjóta í bág við ákvæði hans með því að vígja ungfrúna, sem söfnuðurinn æskir samt eindregið eftir. Ætluðu menn að það myndi kosta lagasetningu að kippa þessu í lag. Því að vafalaust hlaut Helga að bera sigur af hólmi, enda þrír kvenprestar fyrir í Danmörku. Nú hefir Erik Jensen Alaborgarbiskup ákveðið að vígja ungfrúna. — í sambandi við þetta mál er rétt að geta þess, að síðasti biskupafundur í Noregi samþykkti með 6 atkvæðum af 9 þessa ályktun: „Meiri hluti biskupafundarins, biskupar Hamars, Agda, Stafangurs, Niðaróss, Norður-Hálogalands og Suður-Hálogalands aðhyll- ist samþykkt meiri hluta biskupafundarins 1939 um það, að allir leik- menn (karlar og konur) skuli eiga jafnan rétt á því að fá að tala við venjulegar guðsþjónustur. Bendir fundurinn á það, að samkvæmt gild- andi lögum séu konur jafn réttháar karlmönnum til þess að boða Guðs orð í kirkjunni við aðrar athafnir en guðsþjónustur og að prestur og safnaðar- fundur ráði því, að hve miklu leyti leikmenn starfi við guðsþjónustumar." Yfirbískup Spánar, Segura y. Sáenz kardináli og erkibiskup í Madrid, gerizt gamlaður og hálf elliær. Kvartar hann m. a. yfir því, að rannsóknar- réttarins nýtur ekki lengur við og páfinn sé linur að berja á villitrúarmönn- um. Nú hefir karli verið skipaður aðstoðarbiskup, Jóse Maria Bueno Monreal, og er til þess ætlazt, að hann taki við starfi hins fyrrnefnda með fullri ábyrgð.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.