Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1956, Qupperneq 47

Kirkjuritið - 01.02.1956, Qupperneq 47
INNLENDAB FRETTIR 9a Bindindis- og áfengismálasýning var haldin í Reykjavík í síðast- liðnum mánuði. Var hún merk og fjölsótt. Margir skólastjórar létu nem- endur sína kynna sér sýninguna, og var það vel til fallið. Þarna gat að líta m. a. hina miklu slysahættu, sem fylgir vínnautninni og minnt var á heimilisbölið, sem oft er afleiðing hennar. Eins sást glöggt, hve dýrt vínið er og hve mikið magn matvæla má kaupa fyrir eina flösku. Vonandi verð- ur þetta eitt skrefið til úrbóta á áfengisbölinu. Þess er ekki vanþörf. Kirkjukór Húsavíkur hélt fjölsótta samkomu í Húsavíkurkirkju 21. jan. síðastliðinn. Friðrik prófastur Friðriksson var söngstjórinn, sem kona hans frú Gertrud lék á ldjóðfærið. Aldís Friðriksdóttir söng einsöng, en tvísöng sungu þær Aldís Friðriksdóttir og Laufey Vigfúsdóttir. Einnig Ingvar Þór- arinsson og Njáll Bjarnason. Enn söng kvennakór. Ollum söngnum var vel fagnað. Olafur Ólafsson kristniboði ritar fróðlega grein í Fast Grunn 6. h. 1955, um K. F. U. M. og aldarhátíð þess í París í haust sem leið. I sama hefti er grein eftir Skúla Tómasson um „Heimatrúboð leikmanna“, einkum upphafsmann þess Ármann Eyjólfsson skósmið, sem er látinn fyrir skömmu. Ennfremur er þarna endurprentun úr dönsku blað.i á smágrein um séra Friðrik Friðriksson eftir V. Persson. Séra Grímur Grímsson í Sauðlauksdal hefir verið settur til þess að þjóna fyrst um sinn Brjánslækjarprestakalli jafnframt sínu eigin. Séra Þórarinn Þór á Reykhólum hefir verið settur með sama hætti til þess að þjóna Flateyjarprestakalli. Gjöf til Staðarhólskirkju. Eins og sagt var frá í Kirkjuritinu í fyrra, þá gáfu þau hjónin Ingibjörg Guðmundsdóttir og Júlíus Björnsson rafvirkja- nieistari í Reykjavík forkunnarfagra raflýsingu til Staðarhólskirkju í Döl- um. En þau hafa ekki látið staðar numið við þá höfðinglegu gjöf, lieldur hafa þau enn fært Staðarhólskirkju fagra gripi. Eru það tveir þriggja álma kertastjakar úr silfri með rafmagnskertum í, og er að þeim hin mesta prýði. Höfðu hjónin lengi leitað fyrir sér um val á stjökum og létu loks steypa þá í Danmörku. Söfnuður Staðarhólskirkju kann þeim hjónum sínar inni- legustu þakkir fyr.ir gjafir og góðan hug. — Staðarhólskirkja á marga góða velunnara, það sýnir búnaður hennar glögglega. Er kirkjan nú mjög vel búin að gripum góðum og skrúða fögrum, en sjálft kirkjuhúsið hið stæði- legasta. Ég flyt þakkir öllum unnendum Staðarhólskirkju fyrir gjafir þeirra, en þó meir fyrir hið góða hugarfar sem þeim fylgir. Þórir Stephensen.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.