Kirkjuritið - 01.04.1956, Síða 10

Kirkjuritið - 01.04.1956, Síða 10
152 KIRKJURITIÐ annað eins skaplyndi, er kom hingað með mikinn hóp manna með sér, skyldi ekki koma upp kirkju og vígðum reit, og hafa þar prestþjónustu alla. Annað hvort hefir Unnur verið önnur en hún er sögð, eða að kristindómurinn hefir ekki skipað háan sess í hirð hennar. Þar fer ekki mikið fvrir þætti kristninnar. Vel má þó gera sér grein fyrir þessu. Hér var alheiðið þjóð- félag, eins og Landnáma segir. Kristinn gat sá einn verið, er vrildi leggja mikið í sölurnar fyrir það. Þeir, sem kristni vildu halda og afneita öllu öðru, voru hraktir og fengu viðumefni. Ketill í Kirkjubæ var kallaður fífl. Hann og niðjar hans hafa ekki átt sjö dagana sæla þessa öld, sem landið var alheiðið. Hitt fannst flestum skynsamlegra, að fara hægt, láta sem minnst á bera, og lofa svo öllu að kulna út. En þessir fáu, sem þoldu held- ur alla smán en afneita trú sinni, urðu þaulvígði þátturinn í fest- inni, hinn granni þáttur kristninnar í sögu íslands á þessu tíma- skeiði. Kristnin sótti fast á. Þegar kemur fram um árið 1000, og þar á eftir í síauknum mæli, gerist þrýstingurinn frá þessu fram- sækna afli svo geysilegur, að þess finnast varla dæmi önnur, nema ef vera skykli fyrsta herhlaup þessarar sömu kirkju um llóma- veldi í fornöld. Þegar vakningin frá Klunýklaustri er tekin upp og borin fram af páfum eins og Leó IX. og Gregoríusi VII. og svo hverjum af öðrum allt til Innocentiusar III. og eftirmanna hans, þegar vísindi kirkjunnar hlaðast upp í höll háspekinnar, frá Anselmusi frá Kantaraborg og Abelard til Bónaventúru og Tómasar frá Aquino, en prédikarabræður og aðrir betlimunkar flæða um allt, svo að sumt sé nefnt, varð allt undan að láta. í fvrstu lotu voru löndin tekin, opnuð. í annarri lotu undirbúin og skipulögð í erkibiskupsdæmi, biskupsdæmi og prestaköll, með kirkjulögum og þingum. Og í þriðju lotu sigruð gersamlega, svo að ekkert stóðst við, hvorki þjóðhöfðingjar, landslög né annað. Hin stríðandi kirkja virtist sigla hraðbyri upp í það að verða hin sigrandi kirkja, með jarl Krists á jörðunni í hásæti og preláta hans allt um kring og óvígan her um allar jarðir. Þama voru öll völd á himni og jörðu saman komin, völd yfir líkama og sál, lykla-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.