Kirkjuritið - 01.04.1956, Blaðsíða 40
182
KIRKJURITIÐ
hér því ofinn vígður þáttur í sögu þjóðar vorrar. Héðan streymdi
lífsvatn liinna eilífu sanninda kristindómsins, og héðan féllu
frjóvgandi mcnningarstraumur um alla landsins byggð. Hér lifðu
og störfuðu margir þeir kirkjulegir leiðtogar og menningarfröm-
uðir þjóðar vorrar, sem mestan svip hafa sett á líf hennar, og er
með öllu óþarft að þylja nöfu þeirra á þessum stað, svo kunn eru
þau og kær landsmönnum öllum. En til þess að minna á það
að nýju, hver háborg og orkulind íslenzks menningarlífs þessi
staður hefir verið, leyfi ég mér að endurtaka eftirfarandi um-
mæli mín úr hinni fögru og áhrifamiklu prédikun, sem séra
Friðrik J. Rafnar vígslubiskup flutti hér í Skálholtshátíð fyrir
nokkrum árum síðan, því að þau eru meir en þessi \’irði að end-
urtakast:
„Yfir gröf í kirkjugarðinum hér var fyrst sunginn sálmurinn:
Allt eins og blómstrið eina. Hér störfuðu mætustu menn síns
tíma í 729 ár. Hér var Nýja testamentið fyrst þýtt á móðurmálið.
Hér flutti meistari Jón sínar frægu prédikanir. Hér var skráð
fyrsta kirkjusaga þjóðar vorrar“.
Hvílíkar minningar eru eigi bundnar við þennan stað! Hvi-
líka menningarskuld eigum vér honum eigi að gjalda! En þa
skuld gjöldum vér mest og bezt með því að endurreisa Skálholts-
stað í sem fyllztu samræmi við sögu hans og söguhelgaðan sess
hans í meðvitund þjóðarinnar. Hér á að rísa kirkja og mennta-
setur, sem tengt sé minningu þeirri, er um staðinn ljómar fra
hinni löngu og sögufrægu tíð hans, er hann var kirkjulegt menn-
ingarsetur, og sem samboðin séu því hlutverki, er hann gegndi
í þjóðlífinu um aldaraðir, og skapa staðnum með þeim hætti bæði
þann virðingarsess, sem honum ber, og nýja aðstöðu til fram-
haldandi menningaráhrifa.
Þeir menn, eins og séra Sigurbjörn Einarsson og samherjar
hans í Skálholtsfélaginu, sem unnið hafa og vinna að endurreisn
Skálholtsstaðar, eiga því skilið þjóðarþökk fyrir áhuga sinn og
drengilega viðleitni í þá átt. Gildir hið sama um alla þá, er stutt
liafa þá að þörfu og þjóðnýtu viðreisnarstarfi. Mikið ánægjuefm
má öllum unnendum þessa máls einnig vera það, að Alþingi hefir
nú samþykkt fjárframlag til kirkju byggingar í Skálholti. Þa er