Kirkjuritið - 01.04.1956, Blaðsíða 29
5 brœðrasveil
Prestafélagið norska hélt námskeið fyrir presta dagana 17.—
21. október s. 1.
Námskeiðið var í fundarformi, viðfangsefnið: Prédikunin,
samkomustaður: Osló. Þátttakendur voru nærri þrú hundruð
Norðmenn, einn Dani, einn Finni og undirritaður, sem fékk að
mæta fyrir hönd Prestafélags íslands, en var auk þess sérstak-
^ga boðinn sem einn af þátttakendum í sálgæzlunámi við Dia-
kónissusjúkrahúsið í Osló.
Samveran hófst síðdegis mánudaginn 17. október með sam-
eiginlegu borðhaldi. Þar flutti Berggrav biskup setningarræðu,
frumlega og snjalla, sem hann prýddi ýmsum dæmum úr eigin
lífsreynslu. Dvaldi hann nokkuð við það, að gagnsemi þessarar
samveru væri, að sínum dómi, mjög undir því komin, að menn
gerðu sér þess grein, að „enginn prestur er til, sem getur pré-
dikað.“
Ekki varð ég ellimarka var á tali þessa aldna höfðingja,
Pótt mjög sé heilsu hans hrakað. Hann treysti sér ekki
hl frekari þátttöku í fundahöldunum. Næstu fjóra dagana hóf-
ust fundir kl. 10 hvern morgun, en morgunbænir voru haldnar
^álftíma fvrr.
J
Lánaði Heimatrúboðið norska stór og vistleg salarkynni í að-
alstöðvum sínum til fundasetu. Talsverður hópur aðkomupresta
var til húsa í hóteli heimatrúboðsins, sem er í sömu byggingu.
Liblíuskóli heimatrúboðsins sá um sameiginlegar máltíðir, og
Llestir mötuðust þar.
r tarleg framsöguerindi voru flutt kl. 10 um viðfangsefni dags-
lns- Að þeim flutningi loknum var fundarmönnum skipað í sex
^ópa, er ræddu efni dagsins hver um sig í 1—2 klukkustundir.
Skoðanamunur, en án sundurþykkju. Allt í bróðurlegri einingu
Uru það að gera sér viðfangsefnið sem allra ljósast. Eftir þessa