Kirkjuritið - 01.04.1956, Blaðsíða 44
186
KIRKJURITIÐ
og reyndu.“ — (Hvað sem um þetta má segja, er víst, að á þessari auglýs-
ingaöld þyrfti kirkjan, einnig hérlendis, að auglýsa meira starf sitt á
þann hátt, að hún vekti athygli alls almennings. Það er ekki andstaðan,
heldur kæruleysið í hennar garð, sem nú er mesta hættan.)
Makarios erkibiskup. 9. marz síðastliðinn handlóku Bretar Makari-
os erkibiskup á Kípur, er hann var að leggja af stað á ráðstefnu í Grikk-
landi. Ennfremur var annar biskup úr flokki þjóðernissinna tekinn hönd-
um og enn tveir liáttsettir kirkjuleiðtogar. Menn þessir kváðu hafa verið
fluttir í útlegð á ey eina í Kyrrahafinu. Handtökur þessar hafa hvarvetna
mælzt illa fyrir með kristnum og frjálslyndum mönnum. Þykir að vonum
enn verra sakir þess, að jafn menntuð „lýðræðisþjóð“ og Bretar skuli nú
hafa gerzt sek um það ofbeldi, ofsókn og réttleysi, sem byltingarmenn
og einræðisherrar hafa fengið liarðasta dóma fyrr og síðar. Skylt er
að geta þess, að ýmsir andstæðingar brezku stjórnarinnar og raunar fleiri
í Bretlandi telja þetta tiltæki bæði heimskulegt og glæpsamlegt. En víst
er, að það á eftir að verða Bretum til langvarandi vansæmdar og dregur
efalaust illan dilk á eftir sér. En oss íslendingum getur það verið holl við-
vörun um það, hve réttur smáþjóðanna stendur enn höllum fæti í heiminum
hvert sem augum er rennt. Hitt líka, að það kostar víðast enn píslarvætti
að standa með sannleika og réttlæti, frelsi og bræðralagi gegn valdinu.
R. J. Campbell, hinn víðkunni enski prestur, dó í byrjun marz. Hann
varð 89 ára. í upphafi þessarar aldar var liann prestur við City Teinpl®
í London og varð þá heimskunnur prédikari. Árið 1906 gaf hann út bókina
New Theology, sem um skeið varð uppáhaldsrit sumra „nýguð-
fræðinga“, og margir rnunu enn kannast við. Um það bil hálfum öðrum
áratug síðar gekk hann í ensku biskupakirkjuna og tók upp jákvæðari
stefnu í guðfræðinni. En síðan varð frægð hans aldrei slík sem áður fyrr,
þótt hann nyti mikillar virðingar og vinsælda til dauðadags.
Pierry Maury einn af forystumönnum franskra mótmælenda er ny-
látinn. Hann var lengi ritstjóri tímaritsins Foi et Vie og barðist ötullega
fyrir því, að kirkjan léti vandamál lífsins sitja í fvrirrúmi fyrir guðfræði-
legum deilum.
Miklar kappræður fóru fram milli tveggja sænskra guðfræðinga 1
Lundi nú fyrir skönnnu. Gustaf Wingren, ungur háskólakennari í kennimann-
legri guðfræði, hefir ráðizt á guðfræði Anders Nygrens, sem um alllangt