Kirkjuritið - 01.04.1956, Page 16

Kirkjuritið - 01.04.1956, Page 16
158 KIRKJUBITIÐ asta þjóðkirkja, sem til hefir verið. Hún er algerlega ofin inn í þjóðskipulagið, með þess goðavaldi, löggjöf og dómskipun. Og biskuparnir eru höfðingjar að fomum sið. Allt hið nýja urðu þeir að reisa á gamla grunninum. Hvað Jón Ogmundsson hefir hugsað, skal láta ósagt, en hér stóð hann og gat ekki annað. En svo fer þetta að breytast. Kirkjan sezt á laggirnar. Nýr kristinna laga bálkur er lögtekinn, og kirkjan fer að spenna stakk sinn þéttar og þéttar. Krafturinn að utan þrýstir á. A biskupsstól- ana fara að setjast menn, sem ýmist eru þjálfaðir fullkomlega innan veggja kirkjunnar, eins og ábótinn og meinlætamaðurinn Þorlákur Þórhallsson, eða ofsamenn, sem minna eru bundnir af ættarhefð, eins Guðmundur Arason. Þeir gera áhlaup sín án þess að hika. Þeir reka sig að vísu á harðan vegg forna valds- ins, en valda þó óróa og skilja eftir djúp för, bæði hið ytra 1 þjóðlífinu og hið innra í hugum fjölda manna, sem verða hrifn- ir af málstað þeirra og einurð og gefa sig þessum nýja málstað á vald af heilum hug. — Höfðingjavaldið á biskupsstólnum var þó engan veginn brotið á bak aftur í einni svipan. Það hefir haft sín áhrif og dregið úr áhlaupunum, að mestu höfðingjar landsins, Oddaverjinn Páll, sonur Jóns Lofstssonar, og Haukdæl- inn Magnús, sonur Gizurar Hallssonar, taka við af Þorláki og sitja á Skálholtsstóli samtímis Guðmundi á Hólum. En svo verða mikil og afdrifarík umskipti. Þessi þjóðlegi þráð- ur er kubbaður sundur á báðum biskupsstólum, höggvinn uiR þvert. Erlendir biskupar eru skipaðir á báða biskupsstóla. Þetta hlaut að valda stökkbreytingu. Því hefir oft verið lýst, hveniig þessir erlendu biskupar studdu málstað Hákonar konungs hér á landi, og skal ekkert úr því dregið. Hins hefir síður eða ekki verið minnzt, hvernig þeir hlutu að slíta þann dýrmæta þráð, er hélt biskupunum og kirkjunni íslenzku á þjóðlegri braut. Þeir íslenzku biskupar, er síðar settust að stólunum, voru allt aðrir menn í stjórn sinni. Jafnvel þeir biskupar, sem rólegastir voru og mestir íslenzkir höfðingjar, eins og Brandur Jónsson, Jörundur Þorsteinsson og Árni Helgason, beita öllu sínu viti að því að efla kirkjuna að áhrifum, auði og völdum á kostnað forna innlenda valdsins, að ekki séu nefnd nöfn eins og Árni Þorláksson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.