Kirkjuritið - 01.04.1956, Síða 22

Kirkjuritið - 01.04.1956, Síða 22
164 KIRKJURITIÐ aðshöfðingi. Nærri má geta, að sveitaprestarnir voru ekki allir jafn færir í öllu þessu. Sumir hafa ugglaust, eins og gengur, ekki ver- ið mikils virði í neinu af því. Og eins víst er hitt, að til voru bændur, sem voru jafnokar prestanna í ýmsu af þessu. En ég vil fullyrða, að allur þorri íslenzkra sveitpresta var allt þetta í ótrú- lega ríkum mæli og ótrúlega einir um þessa hitu, svo að öldum skipti. Og þetta gat stétt þeirra verið meðal annars vegna þess, hvernig til hennar var efnað. Prestarnir kynntust hverjum ungl- ingi og studdu að því, að þeir efnilegustu voru til mennta settir. Flestir þeirra urðu svo prestar, svo að í þessa stétt valdist með al- veg eðlilegum hætti unginn úr þjóðinni. Þessi þáttur í sögu þjóð- arinnar verður aldrei skráður í einstökum atriðum, en á hann verður að minna, þegar rætt er um þátt kristninnar í sögu þjóð- arinnar. Annars yrði myndin ekki sönn. Og svo erum vér þá komin heim, komin að vorri eigin samtíð. Hver er nú þáttur kristninnar í sögunni, sem er að gerast? Svar við því ætla ég að leiða hjá mér. Það er samtíð en ekki saga og annars eðlis. Mætti ræða það á allt öðrum vettvangi og væri fullkomlega þess virði. Þar ættu fleiri að leiða saman hesta sína, því að vafalaust sýnist þar sitt hverjum. Eg lýk svo þessu máli og veit þó vel, að mörgu hefir enn ekki verið lýst, sem full þörf hefði verið að ræða, enda ekki furða, því að hér er efni í bók frekar en eina grein. En einn þátt veit ég um, sem ekki hefir verið nefndur og er þó ef til vill sá, sem merkilegastur er í sögu kristninnar. En hann er ósýnilegur og órannsakanlegur öllum nema þeim, sem rann- sakar hjörtun og nýrun. Þessi þáttur er kristnin í hugum og hjörtum einstaklinganna og þau áhrif, sem hann hefir haft á breytni þeirra, ákvarðanir þeirra og störf. Hverju þetta hefii' valdið í sögu íslands frá upphafi, verður ekki vitað fyrr en frain verður borin bókin fróða, sem um getur í latínusálminum fræga, lífsins bók. MagnÚs Jónsson".

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.