Kirkjuritið - 01.04.1956, Qupperneq 42

Kirkjuritið - 01.04.1956, Qupperneq 42
Samvinna norrænna prestaíélaga Svo sem íslenzkum prestum er kunnugt, komu fulltrúar allra hinna norrænu prestafélaga saman að Sigtúnum í Svíþjóð. Var þar aðallega rætt um hinn væntanlega norræna prestafund, er haldinn verður í Reykjavík dagana 2.-6. ágúst í sumar. Upphaflega höfðu vonir allra staðið til þess, að fundur þessi gæti farið fram um svipað leyti og Skálholtshátíðin. Svo gat þó eigi orðið, af þeirri ástæðu, að ekki tókst að fá heppilegan farkost handa hinum erlendu prest- um á þeim tíma, er Skálholtshátíðin verður haldin. — íslenzkum prestum er þetta til mikils óhagræðis, því að fyrir bragðið verða prestarnir út um landið að taka sig upp tvisvar frá prestaköllum sínum og búum sínum. Sarnt vona ég, að allir séu fúsir til að gera sitt ýtrasta til þess, að fundur- inn verði vel sóttur, því að hér mun gefast ómetanlegt tækifæri til að kynn- ast sumum ágætustu mönnum systurkirknanna og norrænum prestum úr borg og bæ. Sjálfir hlakka þeir til ferðarinnar og gera sér miklar vonir uni góð kynni af íslenzkum starfsbræðrum sínum. Dagskrá fundarins verður síðar birt. A Sigtúnafundinum voru einnig teknar ákvarðanir um að skipuleggja samstarfið milli prestafélaganna betur en verið hefir. Fer hér á eftir fund- arályktun um það efni: „Fundurinn skorar á stjómir prestafélaganna að koma á öflugu skipu- lagi á norræna samvinnu, með því að tilnefna tvo menn — fonnanninn eða þann, sem stjórnin kann að kjósa í hans stað, og ritarann eða annan með- lim stjómarinnar — er eigi sæti í norrænni samvinnunefnd, sem haldi fund einu sinni á ári og leitist við að efla samvinnu hinna norrænu prestafélaga. Stungið er upp á eftirfarandi verkefnum: 1. Prestafélögin hjálpist að því að koma á fót fastri upplýsingaþjónustu, þannig að hver stjóm sendi hinum félagsblöð, kirkjublöð, árbækur, yfirlitsritgerðir og skýrslur um sérstök mál, og ef til vill afrit af fund- argerðum, þó þannig, að gætt sé fullrar tillitssemi í sambandi við hið síðarnefnda. Mælir fundurinn með því, að kirkjublöð njóti aðstoðar frá mönnum í öðmm norrænum löndum. Æskilegt væri, að eitt tíma- rit yrði samnorrænt að efni. 2. Prestafélögin ættu að vinna að útbreiðslu og gagnkvæmum skiptum

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.